Hlutafjárútboð Bláa lónsins hefst á þriðjudag
Almennt hlutafjárútboð Bláa lónsins hefst þriðjudaginn 10. nóvember og stendur til föstudagsins 13. nóvember. Stefnt er að því að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann 20. nóvember.
Bláa lónið hefur birt lýsingu vegna útboðsins, sem dagsett er 5. nóvember. Tekið verður við áskriftum á vef Landsbankans og er lágmarksfjárhæð áskriftar 100 þúsund krónur. Fjárfestar geta breytt eða afturkallað áskrift sína á útboðstímabilinu.
Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins liggi fyrir eigi síðar en 16. nóvember og að hlutabréfin verði afhent kaupendum fyrir 20. nóvember.
Bláa lónið hefur á undanförnum árum vaxið úr því að reka einn þekktasta ferðamannastað landsins í fjölbreytt ferðaþjónustu- og heilsufyrirtæki. Auk Bláa lónsins í Svartsengi rekur félagið meðal annars The Retreat, Silica Hotel, Highland Base í Kerlingarfjöllum og Fontana við Laugarvatn, auk alþjóðlega húðvörumerkisins Blue Lagoon Skin Science.
Félagið hefur jafnframt gengið frá samningi um kaup á öllu hlutafé í ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures og er gert ráð fyrir að það verði hluti af samstæðunni fyrir lok nóvember.
Bláa lónið vinnur einnig að nýjum uppbyggingarverkefnum í Þjórsárdal og á Hoffelli og á hlut í Jarðböðunum við Mývatn, Vök á Egilsstöðum og Sjóböðunum á Húsavík.
Nánari upplýsingar um útboðið má finna á vef Landsbankans.







