Fjör á árshátíð Skólamatar
Árshátíð Skólamatar fór fram laugardagskvöldið 24. október á Hilton Reykjavík Nordica þar sem um 320 manns komu saman og áttu ánægjulega kvöldstund.
Gestir nutu góðs matar og drykkja og skemmtidagskráin var ekki af verri endanum. Herra Hnetusmjör skemmti gestum og hljómsveitin Bandmenn hélt uppi fjörinu fram eftir kvöldi.
Mikil gleði og góð stemning einkenndi kvöldið og óhætt er að segja að árshátíðin hafi heppnast einstaklega vel.
Hér eru myndir frá fjörinu.





