Heilsugæslan Höfða bólus. 2026
Heilsugæslan Höfða bólus. 2026

Fréttir

Búllan með einn af bestu hamborgum heims í alþjóðlegri könnun
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 4. nóvember 2026 kl. 14:14

Búllan með einn af bestu hamborgum heims í alþjóðlegri könnun

Hamborgarabúlla Tómasar var útnefnd með einn af bestu hamborgurum í heimi þökk sé Steikarborgaranum sem er einkennisborgari veitingastaðarins. Alþjóðlega ferðavefsíðan Big 7 Travel hefur formlega birt árlegan lista sinn yfir 50 bestu hamborgara í heimi og Búllan er í 30. sæti og eini staðurinn á Íslandi sem kemst á heimslistann.

Tómas Tómasson, veitingamaður opnaði fyrsta staðinn sinn, Tommahamborgara, í Reykjavík 1981, stuttu síðar opnaði hann fyrsta staðinn við Hafnargötu í Keflavík. Hann opnaði fyrstu Búlluna árið 2004, sem er að fá þessi verðlaun, og í Reykjanesbæ árið 2020.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Hugmyndafræðin er að sögn Big 7 Travel hressilega einföld: hágæða hráefni úr heimabyggð. Þessi velgengni hefur leitt til þess að opnaðir hafa verið 11 veitingastaðir: átta á Íslandi og einn hvor í Danmörku, Englandi og Þýskalandi. Það sem allir verða að prófa er einkennisborgarinn Steikarborgarinn: safaríkt nautabuff úr hökkuðu ribeye, lund og rumpsteik, með bræddum osti, stökku salati og sósu í ristuðu brioche-brauði, segir í umsögn vefsíðunnar sem er alþjóðleg.

Allt frá klassíska bandaríska ostborgaranum til japanskra Wagyu-sköpunarverka og ótrúlegra „smash“-borgara – hvert horn heimsins hefur fundið sína eigin leið til að gera þennan táknræna rétt enn betri. Listi ársins heiðrar þá hamborgarastaði sem gera þetta best.

Hver hamborgari var dæmdur út frá því sem skiptir mestu máli þegar maður sest niður við frábæran hamborgara:

  • Buffið: gæðanautakjöt (eða framúrskarandi valkostur), eldað af alúð og fullt af bragði.
  • Samsetningin: brauð, ostur, álegg og sósa sem vinna saman í stað þess að keppast um athyglina.
  • Einkennisréttir: hamborgari sem verður að prófa og aðgreinir staðinn frá hinum.
  • Umsagnir gesta: það sem fastagestir og ferðamenn segja ítrekað um hamborgarann.
  • Andrúmsloft og verðgildi: umhverfi sem er ferðarinnar virði og skammtar og gæði sem réttlæta reikninginn.

Víkurfréttir spjölluðu við Tómas árið 2021. Hér er skemmtilegt viðtal við kappann sem hóf kokkanámið á Keflavíkurflugvelli og rak Félagsheimlið Festi í nokkur ár.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100