Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Fréttir

Lag Stapaskólanemenda valið í Málæði
Miðvikudagur 4. nóvember 2026 kl. 10:44

Lag Stapaskólanemenda valið í Málæði

Lagið Allt í gang, sem fimm nemendur í 8. bekk Stapaskóla sömdu, var eitt þriggja laga sem valnefnd Málæðis valdi úr innsendum lögum. Salka Sól og Ragga Hólm heimsóttu skólann í kjölfarið og unnu áfram að laginu með nemendum.

Heiða Lind, Tinna Rut, Elsa Lind, Anna Lísa og María Dís eru höfundar lagsins. Það varð til í verkefnalotu þar sem allir nemendur í 8. bekk fengu tækifæri til að semja texta, skapa tónlist og þróa hugmyndir í sameiningu. Lögin voru síðan send inn til Málæðis, verkefnis sem hvetur ungmenni til að leika sér með íslenskuna og tjá sig í gegnum tónlist.

Þegar Allt í gang hafði verið valið komu fulltrúar Málæðis í Stapaskóla ásamt tónlistarkonunum Sölku Sól og Röggu Hólm. Í heimsókninni var lagið þróað áfram með áhugasömum nemendum úr bekknum.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Nemendur fengu þannig að kynnast því hvernig eigin hugmyndir geta tekið á sig mynd í samstarfi við starfandi tónlistarfólk. Unnið var með texta og tónlist og allur bekkurinn tók þátt í hugmyndavinnu og gerð tónlistarmyndbands við lagið.

Afraksturinn verður kynntur í þættinum Málæði á RÚV sunnudaginn 15. nóvember. Þar verður fylgst með verkefninu og sköpunarferli nemendanna og tónlistarmyndbandið við Allt í gang frumsýnt.









Myndir af vef Stapaskóla.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100