Heilsugæslan Höfða bólus. 2026
Heilsugæslan Höfða bólus. 2026

Fréttir

Suðurnesjabær leggur milljón til söfnunar fyrir brjóstaskimunartæki
Mánudagur 2. nóvember 2026 kl. 13:08

Suðurnesjabær leggur milljón til söfnunar fyrir brjóstaskimunartæki

Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur samþykkt að veita einni milljón króna til söfnunar fyrir brjóstaskimunartæki til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Bæjarfulltrúar ætla jafnframt að gefa fundarlaun til söfnunarinnar og bæjarstjóri leggur fram sambærilega fjárhæð.

Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) standa að söfnuninni ásamt einstaklingum og félagasamtökum. Markmiðið er að konur á Suðurnesjum geti sótt brjóstaskimun í heimabyggð og að efla forvarnir og lýðheilsu á svæðinu.

Styrkurinn var samþykktur á fundi bæjarráðs 28. október. Í afgreiðslu ráðsins er framtakinu fagnað og lögð áhersla á mikilvægi snemmgreiningar brjóstakrabbameins og góðs aðgengis að skimun í heimabyggð.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Auk framlags sveitarfélagsins hafa bæjarfulltrúar ákveðið að gefa laun sín fyrir setu á 95. fundi bæjarstjórnar til söfnunarinnar. Alexandra Jóhannesdóttir bæjarstjóri gefur einnig fjárhæð sem nemur fundarlaunum bæjarfulltrúa fyrir sama fund.

„Þetta er verkefni sem snertir okkur öll. Flest þekkjum við konu sem hefur greinst með brjóstakrabbamein og vitum hversu miklu máli skiptir að greina það snemma. Það á ekki að vera hindrun að þurfa að sækja skimun langt út fyrir heimabyggð,“ segir Alexandra.

Hún lýsir jafnframt ánægju með samstöðu bæjarstjórnar og hvetur fyrirtæki, félagasamtök og íbúa sem hafa tök á til að taka þátt í söfnuninni.

Hér má leggja söfnuninni lið.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100