Fréttir

PISA-niðurstöður undir landsmeðaltali kalla á umbótaáætlun
Frá bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ.
Mánudagur 2. nóvember 2026 kl. 09:06

PISA-niðurstöður undir landsmeðaltali kalla á umbótaáætlun

Nemendur í Reykjanesbæ mælast undir landsmeðaltali í lesskilningi, stærðfræðilæsi og náttúruvísindum samkvæmt yfirferð á PISA-niðurstöðum í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Menntaráð hefur óskað frekari greiningar og tímasettrar umbótaáætlunar.

Díana Hilmarsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, sagði niðurstöðurnar valda áhyggjum. Mikilvægt væri þó að skoða þær í samhengi og hafa í huga að PISA mældi hvernig fimmtán ára nemendur nýttu þekkingu og færni við úrlausn verkefna. Niðurstöðurnar væru ekki heildarmat á skólastarfi eða fagmennsku kennara.

Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri sagði niðurstöðurnar áskorun sem tekin væri alvarlega. Menntaráð hefði kallað eftir skýrum og markvissum viðbrögðum og greining og tillögur kæmu reglulega fyrir ráðið.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
Vill skoða áhrif tungumálsins

Díana vakti athygli á fjölmenningarlegu samfélagi Reykjanesbæjar og því að mörg börn hefðu annað móðurmál en íslensku. Hún taldi ástæðu til að kanna að hvaða marki íslenskufærni hefði áhrif á möguleika nemenda til að sýna þá þekkingu sem þeir byggju yfir.

Hún tók sérstaklega fram að hún væri ekki að halda því fram að tungumál skýrði niðurstöðurnar. Það væri hins vegar þáttur sem þyrfti að skoða í frekari greiningu.

Úrræði og fjármagn þurfa að fylgja

Bæjarstjóri sagði ýmsa vinnu þegar hafna áður en niðurstöðurnar kæmu fram. Þar nefndi hann nýjan læsisramma og mælaborð grunnskólastarfs sem ætti að gera kleift að fylgjast betur með framförum og bregðast fyrr við.

Díana lagði áherslu á að mælingar einar dygðu ekki. Sveitarfélagið þyrfti að vera tilbúið að tryggja nauðsynleg úrræði og fjármagn í kjölfar niðurstaðna.

Hún sagði umræðuna þurfa að fara fram í samstarfi við starfsfólk skólanna. Sameiginlegt markmið væri að bæta námsárangur og skapa börnum raunhæfar forsendur til að ná árangri, óháð bakgrunni.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100