Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Fréttir

Rýna mannvirki og samninga við íþróttafélögin
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 31. október 2026 kl. 05:35

Rýna mannvirki og samninga við íþróttafélögin

Reykjanesbær hefur hafið vinnu við að skapa heildstæða mynd af íþrótta- og tómstundamálum. Skoða á uppbyggingu og viðhald mannvirkja, stuðning bæjarins við félög og núverandi samstarfs- og þjónustusamninga.

Sunna Gunnarsdóttir, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagði á bæjarstjórnarfundi 6. október að markmiðið væri að forgangsraða verkefnum og móta raunhæf næstu skref með íþróttahreyfingunni. Félögin hefðu þegar kynnt stöðu sína og framtíðarsýn.

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir fagnaði vinnunni en gerði athugasemd við að enginn fulltrúi minnihlutans sæti í hópnum sem ætti að sinna henni. Hún hvatti íþrótta-, tómstunda- og menningarráð til að taka skipanina aftur fyrir og bjóða minnihlutanum aðild.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Hún rifjaði upp að á síðasta kjörtímabili hefði verið brugðist við sambærilegri ábendingu í vinnu við Akademíureitinn og fulltrúa minnihluta bætt við. Samvinna væri mikilvæg í þessum málum.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100