Chaplin fór á kostum í sigri Keflavíkur á Hetti
Jamir Chaplin átti stórleik þegar Keflavík lagði Hött, 112-99, í fjórðu umferð Bónusdeildar karla í körfuknattleik. Chaplin skoraði 39 stig og Hilmar Pétursson bætti við 26 stigum. Keflvíkingar hafa nú unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum í deildinni. Umferðinni lýkur með nágrannaslag UMFG og UMFN í Grindavík í kvöld.
Keflvíkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og skoruðu 35 stig í fyrsta leikhluta gegn 28 stigum gestanna. Hattarmenn náðu að minnka muninn fyrir leikhlé en staðan var 60-57 fyrir Keflavík þegar liðin gengu til búningsherbergja.
Þriðji leikhluti var jafn og spennandi þar sem gestirnir gáfu ekkert eftir og komust meira að segja yfir. Keflavík hafði samt þriggja stiga forskot fyrir lokaleikhlutann, 78-74 og voru síðan miklu betri í lokin. Heimamenn skoruðu 34 stig gegn 25 stigum Hattar og tryggðu sér góðan 13 stiga sigur, 112-99.
Jamir Chaplin var maður leiksins með 39 stig, fimm fráköst, sex stoðsendingar og þrjú varin skot. Hilmar Pétursson átti einnig frábæran leik með 26 stig, sex fráköst og fimm stoðsendingar. Jaka Brodnik skoraði 17 stig og tók átta fráköst og Robertas Jonaitis bætti við 14 stigum.
Jordan Kevin Williams skoraði sex stig en lagði einnig sitt af mörkum með átta fráköstum og sex stoðsendingum. Jordan er kominn aftur til liðs við Keflavík, en hann lék þrjá leiki með Keflvíkingum í upphafi síðasta tímabils en stoppaði stutt við eftir að meiðsli höfðu sett strik í reikninginn. Breski framherjinn er því mættur aftur í bláu treyjuna.
Aleksandar Pantelic var stigahæstur Hattar með 19 stig, Sveinn Búi Birgisson skoraði 16 og Joshua James Martin 15 stig auk þess að taka 14 fráköst.
Keflavík er með sex stig eftir fjórar umferðir, þrjá sigra og eitt tap, og situr í fimmta sæti deildarinnar. Álftanes og KR eru efst með átta stig og fullt hús stiga eftir fjóra leiki. Tindastóll og Valur eru einnig með sex stig en Valur hefur aðeins leikið þrjá leiki. Það er hörku nágrannaslagur í Grindavík í kvöld þegar Njarðvík kemur í heimsókn. Liðin hafa farið illa af stað, UMFN án sigurs og UMFG með einn.
Keflavík-Höttur 112-99 (35-28, 25-29, 18-17, 34-25)
Keflavík: Jamir Chaplin 39/5 fráköst/6 stoðsendingar/3 varin skot, Hilmar Pétursson 26/6 fráköst/5 stoðsendingar, Jaka Brodnik 17/8 fráköst, Robertas Jonaitis 14/4 fráköst, Eyþór Lár Bárðarson 6, Jordan Kevin Williams 6/8 fráköst/6 stoðsendingar, Ólafur Björn Gunnlaugsson 4, Frosti Sigurðarson 0, Jakob Máni Magnússon 0, Jökull Ólafsson 0, Viktor Magni Sigurðsson 0.
Höttur: Aleksandar Pantelic 19, Sveinn Búi Birgisson 16/9 fráköst, Joshua James Martin 15/14 fráköst, Nemanja Knezevic 12/6 fráköst, Marquis Jackson 12/7 fráköst/7 stoðsendingar, Adam Eiður Ásgeirsson 9, Ásmundur Múli Ármannsson 6, Obadiah Nelson Trotter 5, David Guardia Ramos 5, Steinar Aðalsteinsson 0, Vignir Steinn Stefánsson 0.
Staða:
1 Álftanes 4 4 0 468 - 380 8
2 KR 4 4 0 390 - 329 8
3 Tindastóll 4 3 1 377 - 342 6
4 Valur 3 3 0 264 - 236 6
5 Keflavík 4 3 1 436 - 409 6
6 Höttur 4 2 2 387 - 417 4
7 Grindavík 3 1 2 252 - 264 2
8 Stjarnan 4 1 3 369 - 387 2
9 ÍR 4 1 3 377 - 420 2
10 Njarðvík 3 0 3 235 - 262 0
11 Sindri 4 0 4 354 - 388 0
12 Ármann 3 0 3 250 - 325 0

Chaplin treður hér með tilþrifum. VF/Valþór Pétursson.





