Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Íþróttir

Grindavík taplaust og á toppnum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 29. október 2026 kl. 17:18

Grindavík taplaust og á toppnum

Grindvíkingar halda áfram sigurgöngu sinni í Bónus-deild kvenna í körfubolta en UMFG vann Fjölni örugglega á útivelli í gær með 29 stiga mun. Grindavík er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga.

Leikurinn var jafn til að byrja með og aðeins munaði þremur stigum á liðunum eftir fyrsta leikhluta, 26-29. Fjölniskonur sem hafa ekki unnið leik héldu áfram að leika vel og voru aðeins fimm stigum undir í hálfleik 45-52.

Grindvíkingar með Abby Beeman í góðum gír völtuðu yfir nýliðana í síðari hálfleik og kláruðu leikinn 70-99.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Fyrrnefnd Abby skoraði mest hjá UMFG, 23 stig og bætti við tíu fráköstum og níu stoðsendingum og vantaði aðeins eina upp á til að ná þrefaldri tvennu. Ellen Nystrom og Farhiya Abdi voru báðar með 16 stig.

Fjölnir-Grindavík 70-99 (26-29, 19-23, 4-18, 21-29)

Grindavík: Abby Claire Beeman 23/10 fráköst/9 stoðsendingar, Ellen Nystrom 16/6 fráköst, Farhiya Abdi 16, Ólöf María Bergvinsdóttir 14, Hulda Björk Ólafsdóttir 10, Isabella Ósk Sigurðardóttir 9/6 fráköst, Ólöf Rún Óladóttir 6/6 fráköst/6 stolnir, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 3, Tegan Graham 2/5 stoðsendingar.

Fjölnir: Arna Rún Eyþórsdóttir 20/6 fráköst, Aðalheiður María Davíðsdóttir 18/5 fráköst, Charisse Fairley 16/14 fráköst/6 stoðsendingar, Hulda Ósk Bergsteinsdóttir 7/7 fráköst, Katla Lind Guðjónsdóttir 3, Helga Björk Davíðsdóttir 3/4 fráköst, Elín Heiða Hermannsdóttir 3, Fanney María Bjarnadóttir 0, Harpa Karítas Kjartansdóttir 0.

Bílakjarninn
Bílakjarninn