Það getur tekið 110 ár að þakka fyrir sig
Það eru margir á Suðurnesjum sem eiga ættir að rekja til Aðalvíkur á Hornströndum. Þegar byggðin fór þar í eyði á sjötta áratug síðustu aldar fluttu margir íbúanna til Keflavíkur og víðar á Suðurnesjum. Það voru reyndar áfram tengsl við þessa litlu vík á Hornströndum, þegar framkvæmdir hófust við ratsjárstöðina á Straumnesfjalli. Keflavíkurverktakar voru meðal þeirra sem unnu að framkvæmdum við veg upp Straumnesfjall og að byggja flugbraut á Látrum. Einn atburður hefur aldrei gleymst hjá þeim sem eiga ættir að rekja til Látra. Það var þegar íbúarnir þar björguðu 58 manns, áhöfn og farþegum þegar Goðafoss strandaði við Straumnes í óveðri 30. nóvember 1916. Þetta er þriðja stærsta björgunarafrek Íslandssögunnar og heimafólk lagði mikið á sig að sækja fólkið í Goðafoss og hlúa að því í landi. Eimskipafélagið lét hins vegar alveg hjá líða að þakka Látrafólki fyrir björgunina og það hefur setið í heimafólki æ síðan.
Það var fyrst fyrir 10 árum sem þær Látrakonur Matthildur Guðný Guðmundsdóttir og Ólöf Sigríður Björnsdóttir fóru að skoða málið. Þær sendu erindi til Eimskips sem var tekið fremur fálega. Tæplega 10 árum síðar gekk það svo eftir að þær fengu fund með núverandi forstjóra Eimskips, Vilhelm Má Þorsteinssyni, sem fékk strax áhuga á málinu. Það leiddi til þess að athöfn var haldin að Látrum 18. júní í sumar, þar sem minnisvarði um björguna var vígður og Látrafólki þakkað þetta afrek.
Þorsteinn J. ritstjóri TV1 Magazin fór norður þegar athöfnin var á Látrum. Hann framleiddi mynd um athöfnina og baksöguna sem er öllum aðgengileg á tv1.is
