Fréttir

Söfnun fyrir brjóstaskimunartæki gengur vel
Frá afhendingu styrkjanna á bleikri messu í upphafi söfnunarinnar. VF/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 29. október 2026 kl. 05:53

Söfnun fyrir brjóstaskimunartæki gengur vel

Söfnun fyrir brjóstaskimunartæki á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja gengur mjög vel og höfðu safnast nærri 39 milljónir króna 28. október. Söfnunin er til 18. nóvember en brjóstaskimunartækið með uppsetningarvinnu kostar 50 milljónir króna.

Áður hefur verið greint frá frábærri byrjun á söfnuninni á bleikri messu í Keflavíkurkirkju 18. október. Þá söfnuðust um 22 milljónir króna. Síðan hafa um 17 milljónir bæst við. Stærri peningagjafir hafa komið frá fyrirtækjum og eins minni upphæðir frá einstaklingum. Ellert Skúlason ehf. gaf 1 milljón og það gerðu líka Saltver ehf., Potter II ehf., Arion banki og Vörður tryggingar og Kvenfélag Keflavíkur. Þá er áhugavert að sjá 300 þús. kr. framlag Nemendaráðs Sandgerðisskóla.

Hægt er að taka þátt í söfnuninn á vefsíðunni sar.is en Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi eru ábyrgðaraðilar hennar.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
Bílakjarninn
Bílakjarninn