Sjónvarp: BM Vallá fær fljúgandi start í Reykjanesbæ
Ný steypustöð BM Vallár á Ásbrú í Reykjanesbæ hefur fengið góðar viðtökur frá gangsetningu undir lok síðasta árs. Fyrirtækið hefur fjárfest fyrir mörg hundruð milljónir króna í stöðinni og samið við Ístak um steypusölu vegna landeldis Samherja á Reykjanesi.
Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins, móðurfélags BM Vallár, segir kröftuga uppbyggingu á Suðurnesjum og stór verkefni á svæðinu hafa ráðið miklu um fjárfestinguna. Hann nefnir meðal annars framkvæmdir við flugvöllinn, raforkuframleiðslu og landeldi.
„Við töldum orðið löngu tímabært að setja hér niður sterka stöð,“ segir Þorsteinn.
Stöðin er sú þriðja í eigu BM Vallár, sem fagnar 70 ára afmæli á árinu. Hún er hönnuð með tilliti til vindálags og jarðskjálftahættu og búin endurvinnslukerfi fyrir afgangssteypu og útskolunarvatn. Þorsteinn segir kolefnisspor starfseminnar hafa minnkað um nærri þriðjung frá árinu 2020.
Fjárfestingin er jafnframt hluti af framtíðarstefnu félagsins. BM Vallá hefur samið við Reykjavíkurborg um að rýma athafnasvæði sitt á Höfðanum eigi síðar en árið 2032. Félagið gerir ráð fyrir að að lágmarki tvær stöðvar þjóni suðvesturhorninu í framtíðinni.
Þorsteinn hrósar einnig stjórnsýslu Reykjanesbæjar og segir stuttar boðleiðir og greið samskipti hafa auðveldað uppbygginguna. Móttökur bæjaryfirvalda og starfsfólks hafi verið til fyrirmyndar og málin gengið hratt og örugglega fyrir sig.