Viðskipti

„Löngu tímabært að setja hér niður sterka stöð“
Þorsteinn og hluti af hans starfsfólki fyrir framan steypustöðina í Reykjanesbæ. VF/pket.
Mánudagur 28. september 2026 kl. 05:57

„Löngu tímabært að setja hér niður sterka stöð“

BM Vallá fær fljúgandi start í Reykjanesbæ

Ný steypustöð BM Vallár á Ásbrú í Reykjanesbæ hefur komið af fullum krafti inn á markaðinn á Suðurnesjum frá því hún var gangsett undir lok síðasta árs. Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins (móðurfélags BM Vallár), lýsir yfir mikilli ánægju með viðtökurnar og segir stórverkefni á svæðinu og kröftuga uppbyggingu gera komuna til Reykjanesbæjar að lykilskrefi í framtíðarstefnu fyrirtækisins.

BM Vallá, sem fagnar 70 ára afmæli sínu á árinu, hefur fjárfest fyrir mörg hundruð milljónir króna í stöðinni á Ásbrú. Stöðin, sem kemur frá þýska framleiðandanum Nisbau, er sérstaklega hönnuð með tilliti til staðbundinna aðstæðna, svo sem vindálags og jarðskjálftahættu. Þá er hún búin háþróaðri endurvinnslustöð sem endurnýtir alla afgangssteypu og útskolunarvatn.

Frá upphafi framkvæmda við stöðina.
Sjötíu ára saga

Saga BM Vallár nær aftur til ársins 1956 þegar Benedikt Magnússon frá Vallá hóf að moka möl í fjörunni á Kjalarnesi og selja í steypu. Í dag er BM Vallá hluti af samstæðu Hornsteins, sem er í meirihlutaeigu alþjóðlega steypurisans Heidelberg (53%) ásamt hópi innlendra fjárfesta (47%). Stöðin í Reykjanesbæ er sú þriðja í eigu BM Vallár en fyrir er félagið með steypustöðvar í Reykjavík og Akranesi og í samstarfi við Möl og Sand á Akureyri. Hjá BM Vallá starfa um 160 manns og þremur tugum meira í samstæðunni.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Ótrúlegur vöxtur og stór tækifæri

Aðspurður um ástæðu þess að ráðist var í þessa stóru fjárfestingu á Suðurnesjum segir Þorsteinn að umhverfið á svæðinu hafi breyst gríðarlega á undanförnum áratugum.

„Við höfum horft mjög lengi til Reykjanesbæjar og má segja að þessi fjárfesting eigi sér talsverðan aðdraganda. Hér hefur verið alveg ótrúlega kröftug uppbygging á undanförnum áratugum. Ótrúleg umbreyting sem svæðið hefur gengið í gegnum frá þeim tíma sem herinn fór og sú niðursveifla sem því fylgdi.“

Þorsteinn bendir á að íbúafjölgun á Suðurnesjum hafi tekið til sín drjúgan hluta af vexti suðvesturhornsins síðasta aldarfjórðunginn. Þá séu mikilvægir innviðir og stórframkvæmdir á svæðinu stór ástæða fyrir komu BM Vallár:

„Við horfðum til þess þegar maður horfir fram á veginn að það er auðvitað mikil innviðauppbygging fram undan, bæði í kringum flugvöllinn, í kringum raforkuframleiðslu og síðan sjáum við þetta metnaðarfulla landeldisverkefni sem Samherji er kominn af stað með á Reykjanesi. Við töldum orðið löngu tímabært að setja hér niður sterka stöð.“

BM Vallá náði samningum við Ístak um steypusölu í landeldi Samherja og hefur stöðin fengið „fljúgandi start“ frá því hún var gangsett af fullum krafti undir lok síðasta árs.

Hluti af framtíðarstefnu

Koma BM Vallár til Reykjanesbæjar er einnig stór hluti af framtíðarstefnumótun félagsins, en fyrirtækið hefur gert samkomulag við Reykjavíkurborg um að rýma athafnasvæði sitt á Höfðanum eigi síðar en árið 2032.

Þorsteinn útskýrir að breytingar á skipulagi í Reykjavík þýði að grófari atvinnustarfsemi þurfi að færa sig um set.

„Höfðinn er einstaklega þægileg staðsetning fyrir starfsemi eins og okkar, en við fáum hvergi þar nálægt pláss aftur. Við sáum fyrir okkur að í framtíðinni yrðu það tvær stöðvar sem myndu þjóna suðvesturhorninu að lágmarki. Þessi fjárfesting í Reykjanesbæ var náttúrulega liður í þeirri framtíðarstefnumótun.“

Stuttar boðleiðir og skilningur á verðmætasköpun

Eitt af því sem stendur upp úr í samtalinu er reynsla BM Vallár af samskiptum við stjórnsýsluna í Reykjanesbæ. Þorsteinn leyfir sér að bera vinnubrögðin saman við það flækjustig sem oft mætir fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu.

„Eftir að hafa verið í talsverðum samskiptum við flókið regluverk víða þá var mjög frískandi að koma hingað. Það var gengið hratt og örugglega í hlutina og við lentum ekki í neinum tilfinnanlegum vandræðum.“

Hann segir að móttökurnar hjá bæjaryfirvöldum og starfsmönnum bæjarins hafi verið til fyrirmyndar:

„Stuttar boðleiðir og fólk á tánum við að koma hlutum áfram, sem er alltaf gaman að sjá. Ég held að þetta sé augljóst merki þess að hér sé fólk í raunhagkerfinu sem veit hvernig verðmætasköpun verður til og að hún er virði í tíma. Það er mikilvægt að hlutir gangi hratt og örugglega fyrir sig.“

Umhverfismálin í fyrirrúmi

Steypuiðnaðurinn hefur breyst mikið á síðustu áratugum og eru umhverfismál nú í brennidepli. Þorsteinn nefnir að tæknilega sé verið að gera svipaða hluti og Rómverjar gerðu fyrir 2.000 árum, en kröfurnar og vinnsluaðferðirnar séu allt aðrar.

„Megináherslan á síðastliðnum tíu til tuttugu árum er umhverfisáhrifin. Kolefnisspor sementsiðnaðar er nokkuð hátt á heimsvísu, en við höfum verið í fararbroddi hér á landi í þeirri vegferð. Heilt yfir í okkar starfsemi höfum við náð nærri þriðjungs lækkun á kolefnisspori frá 2020.“

Með nýju stöðinni í Reykjanesbæ, vistvænni steypu og aukinni nýtingu endurunninna hráefna telur Þorsteinn að BM Vallá sé vel í stakk búið til að þjóna kröfuhörðum markaði á Suðurnesjum til framtíðar.

Séð yfir athafnasvæði steypustöðvar BM Vallár á Ásbrú.




Bílakjarninn
Bílakjarninn