Samþykkja samning um rekstur slökkviliðsins árið 2027
Bæjarráð Grindavíkur hefur samþykkt þjónustu- og samstarfssamning við forsætisráðuneytið um rekstur Slökkviliðs Grindavíkur árið 2027. Samningurinn gildir frá 1. janúar til 31. desember það ár.
Í bókun bæjarráðs kemur fram að starfsemi slökkviliðsins á sólarhringsvöktum sé ein af lykilforsendum öryggis í Grindavík. Endurnýjun samningsins styðji því við þá niðurstöðu áhættumats að óhætt sé að dvelja og starfa í bænum.
Bæjarráð þakkar forsætisráðuneytinu og öðrum sem komu að gerð samkomulagsins fyrir gott samstarf um málið.





