Minnast fórnarlamba umferðarslysa í Ytri-Njarðvíkurkirkju
Minningarathöfn um fórnarlömb umferðarslysa verður haldin í Ytri-Njarðvíkurkirkju sunnudaginn 15. nóvember klukkan 14. Athöfnin er liður í alþjóðlegum minningardegi fórnarlamba umferðarslysa og er öllum opin.
Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að sérstök áhersla verði lögð á unga vegfarendur í ár og mikilvægi þess að auka öryggi þeirra. Dagurinn sé jafnframt tileinkaður minningu þeirra sem hafa látist í umferðinni og samstöðu með fjölskyldum þeirra, vinum og öðrum aðstandendum.
Barnakórinn Regnbogaraddir og ungmennakórinn Himinn og jörð hefja athöfnina klukkan 14 með flutningi lagsins When I Think of Angels. Samkvæmt tilkynningunni verður lagið flutt á sambærilegum athöfnum víðs vegar um landið á sama tíma og það verður leikið á útvarpsstöðvum landsins.
Klukkan 14.05 tekur séra Helga Kolbeinsdóttir við og leiðir minningarathöfnina ásamt ræðumanni dagsins. Að henni lokinni verður gestum boðið upp á kaffi og kleinur í safnaðarheimili kirkjunnar.
Mæting við kirkjuna er klukkan 13.40. Viðbragðsaðilar safnast saman við ökutæki sín klukkan 13.45 til 13.55, þar sem tekin verður sameiginleg hópmynd.
Lögreglan hvetur íbúa Suðurnesja til að mæta og sýna þeim sem hafa misst ástvini í umferðinni hlýhug og samstöðu. Minningardagurinn sé einnig áminning um ábyrgð allra vegfarenda og mikilvægi þess að koma í veg fyrir frekari harmleiki í umferðinni.





