Viðskipti

Troðfullt út úr dyrum í nýrri Nettó-verslun í Reykjanesbæ
Fjöldi fólk beið við innganginn þegar Nettó opnaði á laugardagsmorgun.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 10. nóvember 2026 kl. 10:51

Troðfullt út úr dyrum í nýrri Nettó-verslun í Reykjanesbæ

„Opnunin á Aðaltorgi heppnaðist ótrúlega vel og fjöldi gesta var langt umfram það sem við áttum von á. Það var bókstaflega troðfullt út að dyrum alla helgina, rétt eins og allur bærinn hafi mætt,“ segir Katrín Hilmarsdóttir, verslunarstjóri í nýju Nettó-versluninni á Aðaltorgi í Reykjanesbæ en hún var opnuð síðasta laugardag með pompi og prakt.

„Það var mjög gaman að heyra hversu vel viðskiptavinum leist á nýju verslunina og ekki síst nýju snyrtivörudeildina. Stemningin var alveg frábær alla helgina og við erum ótrúlega þakklát fyrir móttökurnar. Til að framlengja aðeins í opnunargleðinni ákváðum við að hafa opnunartilboð aftur næstu helgi,“ sagði Katrín.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Verslunin, sem er 1.500 fermetrar, er opin allan sólarhringinn og kemur í stað Nettó á Iðavöllum sem lokaði í síðustu viku.

Meðfylgjandi myndir tók Rebekka Rut við opnunina.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100