Viðskipti

Bláa Lónið á markað og efnir til almenns hlutafjárútboðs
Föstudagur 30. október 2026 kl. 16:06

Bláa Lónið á markað og efnir til almenns hlutafjárútboðs

Á hluthafafundi Bláa Lónsins hf. í dag var formlega samþykkt að efna til almenns hlutafjárútboðs og óska eftir töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Hluthafar samþykktu einnig kaupréttaráætlun fyrir allt fastráðið starfsfólk samstæðunnar.

Starfsemi Bláa Lónsins hefur vaxið verulega undanfarin ár. Skráning á Aðalmarkað Nasdaq Iceland er stór áfangi í sögu Bláa Lónsins. Skráning mun styrkja og breikka hluthafahópinn og gefa almenningi, fagfjárfestum og starfsfólki tækifæri til að eiga hlut í einu þekktasta fyrirtæki landsins. Stefnt er að almennu hlutafjárútboði og skráningu í nóvember segir í tilkynningu frá félaginu.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Starfsfólk geti orðið hluthafar

Kaupréttaráætlunin sem samþykkt var nær til alls fastráðins starfsfólks Bláa Lónsins hf. og dótturfélaga þar sem félagið á yfir 90% hlut í, alls um 700 einstaklinga. Hver kaupréttarhafi öðlast rétt til að kaupa hluti í félaginu fyrir allt að 1.500.000 krónur einu sinni á ári í fimm ár, á árunum 2028 til 2032, eða samtals fyrir allt að 7.500.000 krónur.

„Starfsfólkið okkar er sá hópur sem skapar þá einstöku upplifun og þær einstöku vörur sem viðskiptavinir okkar um allan heim þekkja. Það skiptir okkur miklu að þegar félagið tekur þetta skref inn á markað geti allt fastráðið starfsfólk tekið þátt í vextinum fram undan,“ segir Hildur Þórisdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs Bláa Lónsins.

Markmið kaupréttarkerfisins er að halda í og laða að framúrskarandi starfsfólk og gefa því hlutdeild í árangri félagsins.

Áætlunin er gerð í samræmi við 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og verður borin undir Ríkisskattstjóra til staðfestingar áður en gengið verður frá kaupréttarsamningum við starfsfólk.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100