Hviða
Hviða

Fréttir

Lengsta farþegaþota heims prófuð í Keflavíkurvindi
Boeing 777-9 á Keflavíkurflugvelli. Mynd/Sigurjón Hafsteinsson.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 29. október 2026 kl. 18:05

Lengsta farþegaþota heims prófuð í Keflavíkurvindi

Fyrsta 777-9 tilraunavél Boeing kom til Keflavíkurflugvallar í fyrradag og nýtti sér hausthvassviðri og fékk rigningu í kaupbæti en vélin var hingað komin til hliðarvindsprófana en henni var flogið frá Seattle. Þetta er í fyrsta sinn sem Boeing 777-9 kemur til Íslands en vélin er stærsta tveggja hreyfla farþegaþota heims, hún er 76,7 metra löng og með 71,8 metra flugvænghaf á flugi og er hönnuð fyrir að bera 375 til 450 farþega.

Í þessari Íslandsheimsókn var stjórnhæfni flugvélarinnar og afköst metin við krefjandi vindaðstæður en vottunarferli 777X heldur áfram. Vélin er fjórum metrum lengri en Jumboþota Boeing 747-8 og verður sú lengsta í heimi. 

Það sem er áhugavert við þessa nýju vél eru vængendarnir. Boeing 777X er með samanbrjótanlega vængenda. Þegar vélin er í flugi er vænghafið 71,8 m, en þegar hún er á jörðu eru endarnir felldir upp og vænghafið verður aðeins 64,8 m. Þetta gerir Boeing kleift að hafa mjög langa og skilvirka vængi í flugi án þess að vélin verði of breið fyrir mörg hefðbundin flughlið að því er fram kemur á heimasíðu Boeing.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Af hverju er Boeing að prófa hana í Keflavík?

En af hverju er Boeing að mæta til Keflavíkur til prófana? Málið er að vélin þarf að sýna fram á hvernig vélin ræður við mjög sterkan hliðarvind við flugtak og lendingu áður en hún fær endanlega tegundarvottun. Boeing leitar því bókstaflega að stöðum þar sem líklegt er að fá nógu mikinn vind og þar kemur Keflavíkurflugvöllur til sögunnar og ekki í fyrsta skipti en þar eru sterkir og breytilegir vindar, tvær langar flugbrautir sem liggja í mismunandi áttir, auk þess að á flugvellinum er góð aðstaða fyrir stórar flugvélar.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Keflavík gegnir þessu hlutverki; þar hafa meðal annars farið fram hliðarvindsprófanir á eldri Boeing 777 og Airbus A380 myndskeið hér.

Og þessi tiltekna vél er enn merkilegri

N779XW / WH001 er fyrsta 777-9 prófunarvélin. Hún er því ekki venjuleg farþegavél heldur full af prófunarbúnaði og mælitækjum. Vélin er enn í vottunarferli. Boeing sagði í sumar að prófunarflotinn hefði farið meira en 4.800 flugtíma og um 1.700 flugferðir, og stefnt væri að fyrstu afhendingum árið 2027.



Bílakjarninn
Bílakjarninn