Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 12. október 2026 kl. 15:04

Um 300 manns á Landsmóti lúðrasveita í Reykjanesbæ léku lög eftir Gunnar Þórðarson

Um 300 manns mættu til Reykjanesbæjar 9.-11. október til að blása í lúðra í orðsins fyllstu merkingu en um var að ræða Landsmót lúðrasveita á landinu. Lúðrasveitarfólk frá öllu landinu mætti til æfinga í tvo daga en þeim lauk með tónleikum. VF ræddi við Ragnheiði Eir Magnúsdóttur frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og kíkti á æfingu í Íþróttahúsi Njarðvíkur, ljónagryfjuna þar sem oftar er leikinn körfubolti en nú ómuðu fallegir tónar um íþróttasalinn.