Fréttir

Áttatíu ára portúgalskt flugfélag hefur flug milli KEF og Lissabon sumarið 2027
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 29. október 2026 kl. 16:38

Áttatíu ára portúgalskt flugfélag hefur flug milli KEF og Lissabon sumarið 2027

Portúgalska flugfélagið TAP Air mun hefja flug milli Keflavíkurflugvallar (KEF) og Lissabon á sumaráætlun sinni 2027. Flogið verður þrisvar í viku milli áfangastaðanna frá 1. apríl til 28. október 2027 .
TAP Air bætist þar með í hóp þeirra 28 flugfélaga sem hafa boðað að þau ætli að fljúga til og frá KEF næsta sumar. 
Með tengimiðstöð TAP í Lissabon opnast jafnframt góðar tengingar fyrir farþega til fjölmargra áfangastaða, þar á meðal til Faro og Madeira í Portúgal, auk áfangastaða í Afríku og Suður-Ameríku. 
Flugfélagið er stærsta flugfélag Portúgals og eitt af elstu starfandi flugfélögum Evrópu með eitthundrað flugvélar í sinni þjónustu. Aðalstarfsstöð þess er í Lissabon.
„Það er afar ánægjulegt að bjóða TAP Air velkomið til Keflavíkurflugvallar. Lissabon er vinsæll og spennandi áfangastaður og um leið öflug tengimiðstöð til fjölmargra áfangastaða í Suður-Evrópu, Afríku og Suður-Ameríku. Við hlökkum til samstarfsins,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála á KEF í tilkynningu frá Isavia.
Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn
Bílakjarninn