Ólafur Árnason ráðinn mannauðsstjóri Suðurnesjabæjar
Ólafur Árnason hefur verið ráðinn nýr mannauðsstjóri Suðurnesjabæjar. Ráðning hans var staðfest á fundi bæjarstjórnar þann 13. október síðastliðinn.
„Ólafur kemur til okkar með dýrmæta reynslu, bæði sem mannauðsstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar og úr eigin ráðgjöf við fjölda fyrirtækja síðustu ár. Í starfi sínu hefur Ólafur lagt áherslu á góða vinnustaðamenningu og sterka liðsheild,“ segir í frétt frá Suðurnesjabæ.
„Ég geng spenntur til liðs við Suðurnesjabæ. Þetta er kraftmikið sveitarfélag í sókn. Ég hlakka til að kynnast starfsfólkinu og byggja upp með því vinnustað þar sem fólki líður vel, því þar sem fólk fær svigrúm til að vaxa verða til bæði sterkari einstaklingar og sterkari vinnustaðir,“ segir Ólafur.





