Hviða
Hviða

Íþróttir

Njarðvík í toppbaráttunni en Keflavík tapaði systraslagnum
Anna Ingunn tapaði í systraslagnum gegn Agnesi systur sinni í Stjörnunni. Hér eru þær tvær og fleiri í baráttunni. VF/Hildur Björk Pálsdóttir.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 28. október 2026 kl. 10:05

Njarðvík í toppbaráttunni en Keflavík tapaði systraslagnum

Njarðvíkingar unnu mikilvægan útisigur á Ármanni, 87:81, þegar fimmta umferð Bónus-deildar kvenna í körfuknattleik hófst í gærkvöldi. Keflavík tapaði hins vegar sínum fjórða leik á tímabilinu þegar Stjarnan kom í heimsókn og vann öruggan sigur, 92:72. Systurnar Anna Ingunn og Agnes María Svansdætur mættust í þeim leik og höfðu þær báðar talsverð áhrif á leik sinna liða. Keflavík lék án Bandaríkjamanns en Hannah Little hefur verið send heim.
Stjarnan hafði betur í systraeinvíginu

Keflvíkingar áttu erfitt uppdráttar gegn Stjörnunni, sem náði snemma undirtökunum í leiknum. Gestirnir leiddu 21:25 eftir fyrsta leikhluta og juku forskotið í öðrum leikhluta sem þeir unnu 13:23. Staðan í hálfleik var því 34:48 fyrir Stjörnuna.

Stjarnan hélt áfram að bæta við forskotið í þriðja leikhluta og var komin í 71:50 fyrir síðustu tíu mínúturnar. Keflavík vann lokaleikhlutann með einu stigi, 22:21, en það breytti litlu um úrslitin. Lokatölur urðu 92:72 fyrir Stjörnuna.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Systurnar Anna Ingunn og Agnes María Svansdætur léku í sitt hvoru liðinu. Anna Ingunn var næststigahæst Keflvíkinga með 18 stig og fjögur fráköst en Agnes María skoraði ellefu stig fyrir Stjörnuna, tók fjögur fráköst og varði þrjú skot.

Thelma Dís Ágústsdóttir var stigahæst Keflavíkur með 21 stig og átta fráköst. Amaiquen Siciliano skoraði tólf stig og gaf sjö stoðsendingar.

Hjá Stjörnunni var Eva Wium Elíasdóttir stigahæst með 24 stig. Xaviera Dyer skoraði 19 stig og tók tíu fráköst en Stina Almqvist bætti við 18 stigum og stal fimm boltum.

Keflavík hefur nú tapað fjórum af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni og situr í áttunda sæti með tvö stig. Stjarnan er hins vegar komin með átta stig eftir fjóra sigra í fimm leikjum.

Keflavík – Stjarnan 72:92 (21-25, 13-23, 16-23, 22-21)

Keflavík: Thelma Dís Ágústsdóttir 21/8 fráköst, Anna Ingunn Svansdóttir 18/4 fráköst, Amaiquen Siciliano 12/7 stoðsendingar, Hanna Gróa Halldórsdóttir 6/5 fráköst, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 4, Anna Lára Vignisdóttir 4, María Jónsdóttir 2, Ásdís Elva Jónsdóttir 2, Oddný Hulda Einarsdóttir 2, Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir 1, Ásdís Lilja Guðjónsdóttir 0, Telma Lind Hákonardóttir 0.

Stjarnan: Eva Wium Elíasdóttir 24/5 fráköst, Xaviera Alexandria Dyer 19/10 fráköst/5 stoðsendingar, Stina Josefine Almqvist 18/5 fráköst/5 stolnir, Diljá Ögn Lárusdóttir 13/6 fráköst, Agnes María Svansdóttir 11/4 fráköst/3 varin skot, Eva Ingibjörg Óladóttir 4, Ísabella Fjeldsted Magnúsdóttir 2, Elísabet Ólafsdóttir 1, Fanney María Freysdóttir 0, Valdís Helga Alexanderdóttir 0, Ingibjörg María Atladóttir 0, Bára Björk Óladóttir 0/4 fráköst.

Dinkins og Helena leiddu Njarðvík til sigurs

Njarðvíkingar héldu sigurgöngu sinni áfram með sex stiga útisigri á stigalausum Ármenningum sem gáfu Íslandsmeisturunum hörku viðureign, 81:87, í leik þar sem heimakonur gerðu harða atlögu að Íslandsmeisturunum í síðari hálfleik.

Njarðvík byrjaði af krafti og leiddi 19:25 eftir fyrsta leikhluta. Gestirnir bættu við forskotið í öðrum leikhluta, sem þeir unnu 16:22, og voru því tólf stigum yfir í hálfleik, 35:47.

Ármann náði að minnka muninn í þriðja leikhluta með því að vinna hann 27:20. Staðan var 62:67 fyrir Njarðvík þegar lokaleikhlutinn hófst.

Heimakonur náðu þó ekki að snúa leiknum sér í hag. Njarðvíkingar unnu síðasta leikhlutann með einu stigi og tryggðu sér þar með 81:87 sigur.

Brittany Dinkins fór enn einu sinni fyrir Njarðvíkurliðinu og skoraði 27 stig, tók sex fráköst og gaf níu stoðsendingar. Helena Rafnsdóttir átti einnig mjög góðan leik með 22 stig, fjögur fráköst og sex stoðsendingar.

Emma Grace Theódórsson skilaði glæsilegri tvöfaldri tvennu með 19 stigum og 14 fráköstum. Krista Gló Magnúsdóttir skoraði tíu stig og Sara Björk Logadóttir sjö.

Hjá Ármanni var Diamond Battles stigahæst með 24 stig en Jónína Þórdís Karlsdóttir skoraði 21 stig.

Ármann-Njarðvík 81-87 (19-25, 16-22, 27-20, 19-20)

Ármann: Diamond Alexis Battles 24/5 fráköst/5 stoðsendingar, Jónína Þórdís Karlsdóttir 21/7 fráköst, Ragnheiður Björk Einarsdóttir 12, Edyta Ewa Falenzcyk 11/8 fráköst/5 stoðsendingar, Brynja Benediktsdóttir 6/6 fráköst, Milica Sirovina 5/5 fráköst, Aníka Linda Hjálmarsdóttir 2, Birgit Ósk Snorradóttir 0, Auður Hreinsdóttir 0, Auður Dóra Arnardóttir 0, Rakel Sif Grétarsdóttir 0, Sigríður Ása Ágústsdóttir 0.

Njarðvík: Brittany Dinkins 27/6 fráköst/9 stoðsendingar, Helena Rafnsdóttir 22/4 fráköst/6 stoðsendingar, Emma Grace Theódórsson 19/14 fráköst, Krista Gló Magnúsdóttir 10, Sara Björk Logadóttir 7, Hulda María Agnarsdóttir 2/7 fráköst, Aníta Rut Helgadóttir 0, Dagbjort Dora Kristmannsdottir 0, Kristín Björk Guðjónsdóttir 0, Eygló Kristín Óskarsdóttir 0, Alexandra Eva Sverrisdóttir 0/4 fráköst.

Þrjú lið með átta stig á toppnum

Njarðvík er nú í öðru sæti Bónus-deildarinnar með átta stig eftir fimm leiki, fjóra sigra og eitt tap. Stjarnan er með sama árangur í þriðja sæti.

Grindavík er hins vegar enn eina taplausa lið deildarinnar, með fjóra sigra í fjórum leikjum og átta stig. Grindvíkingar mæta Stólunum í 5. umferð.

Keflavík er í áttunda sæti með einn sigur í fimm leikjum og tvö stig.

Þrjú Suðurnesjalið eru því á ólíkum stöðum í deildinni eftir fyrstu leiki fimmtu umferðar. Grindavík og Njarðvík eru í toppbaráttunni en Keflavík þarf að snúa gengi sínu við eftir erfiða byrjun á tímabilinu.

Keflavík-Stjarnan // Bónusd. kvenna // 27.okt. 2026

Bílakjarninn
Bílakjarninn