Íþróttir

Jafntefli í átta marka leik á Skipaskaga - Keflavík endaði í 6. sæti
Keflvíkingar geta vel við unað eftir gott tímabil í Bestu deildinni.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 24. október 2026 kl. 19:21

Jafntefli í átta marka leik á Skipaskaga - Keflavík endaði í 6. sæti

Keflvíkingar gerðu 4-4 jafntefli við Skagamenn í lokaleik liðsins í Bestu-deildinni í knattspyrnu í dag. Keflavík endaði í 6. sæti deildarinnar en liðið gerði tvö jafntefli og tapaði þremur leikjum í úrslitakeppni efri hluta deildarinnar.

Leikurinn í Akraneshöllinni var fjörugur og heimamenn komust í forystu á 11. mínútu. Alpha Conteh jafnaði 1-1 en kappinn kom mikið við sögu í leiknum en hann gaf Skagamönnum mark þegar hann stoppaði á miðjum velli og beið eftir því að dómarinn dæmdi aukaspynu, sem hann fékk ekki. Skagamenn tóku boltann og skoruðu en kappinn átti eftir að bæta fyrir það skömmu í síðari hálfleik. Skagamenn bættu við þriðja markinu og virtust á leiðinni í leikhlé með tveggja marka foryrstu en Keflvíkingar minnkuðu muninn á næst síðustu mínútu fyrri hálfleik með marki Eiðs Orra Ragnarssonar sem skoraði laglegt mark.

Keflvíkingar héldu áfram með látum í upphafi síðari hálfleiks, voru með mikla yfirburði og uppskáru tvö mörk. Alpha Conteh skoraði glæsilegt mark á 48. mínútu og Axel Ingi Jóhannsson skoraði fallegt skallamark eftir hornspyrnu á 56. mínútu og allt í einu voru bítlabæjardrengir búnir að skora þrjú mörk á örfáum mínútum og taka forystuna. Skagamenn voru þó ekki á þeim buxunum að tapa leiknum og jöfnuðu leikinn á 74 mínútu og þar við sat, 4-4.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Keflvíkingum var spáð falli af flestum í upphafi móts. Liðið kom fljótlega skemmtilega á óvart með góðri spilamennsku og náði ágætum úrslitum eftir tap í fyrstu tveimur leikjum mótsins. Keflavík náði að enda í 6. sæti þó liðið hafi tapað tveimur síðustu leikjum deildarinnar áður en henni var skipt upp. Það hafði að litlu að keppa í úrslitakeppninni og hlutirnir féllu ekki með því í þremur jöfnum leikjum gegn Víkingi, Val og KR en jafntefli var niðurstaðan gegn Fram og ÍA. Niðurstaðan 6. sæti er miklu betri en fáir þorðu að vona og eitthvað sem Haraldur og Hólmar þjálfarar geta byggt á þó svo að óvissa sé með leikmannahópinn fyrir næsta keppnistímabil.

Bílakjarninn
Bílakjarninn