Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Fréttir

Þrjátíu og níu milljónir til 33 aðila frá Góðgerðarfesti Blue
Fulltrúar styrkþega 2026 ásamt fulltrúum Blue Car.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 22. október 2026 kl. 14:05

Þrjátíu og níu milljónir til 33 aðila frá Góðgerðarfesti Blue

Þrjátíu og níu milljónir króna söfnuðust í Góðgerðarfesti Blue Car rental sem renna til 33 aðila. Styrkirnir voru afhentir í húsnæði Blue Car að Blikavöllum á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku.

„Við viljum láta gott af okkur leiða. Þetta byrjaði sem starfsmannapartý en upp úr því kom hugmyndin að gera meira og nú er þetta orðinn mjög stór viðburður, sjálft góðgerðarfestið þar sem við tvinnum saman skemmtun og peningasöfnun sem rennur öll í góð málefni. Við söfnuðum 12 milljónum fyrsta árið, sextán ári síðar. Svo höfum við alltaf náð að toppa árið á undan og nú sjötta árið náðum við 39 milljónum,“ sögðu þeir bræður, Magnús Sverrir og Þorsteinn Þorsteinsson, við afhendingu styrkjanna.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Samtals hafa á sex árum safnast 144 milljónir króna sem allar hafa runnið til fjölda aðila sem eru nær allir á Suðurnesjum. Um 150 fyrirtæki og fjölmargir einstaklingar lögðu söfnuninni lið.

Á hátíðinni sem fór fram í reiðhöll Mána í Reykjanesbæ 10. október mætti mikill fjöldi gesta, skálaði í októberstíl og skemmti sér. Nokkrir af helstu tónlistarmönnum landsins mættu, m.a. Bubbi Morthens, bræðurnir Jón og Friðrik Dór Jónssynir, Herra Hnetusmjör, Kristmundur Axel og Salka Sól.

Styrkþegar - Góðgerðarfest 2026

- Krabbameinsfélag Suðurnesja

- Ljónshjarta

- Gleym mér ei styrktarfélag

- Barnaheill

- Píetar

- Styrktarsjóður Hæfingarstöðvar

- Minningarsjóður Ragga Margeirs

- Minningarsjóður Ölla

- Starfsbraut Fjölbrautaskóla Suðurnesja

- Viðja, sérhæft námsúrræði í Myllubakkaskóla

- Stapaskóli, sérhæft námsúrræði

- Sandgerðisskóli, Drekagarður og Friðgarður sérúrræði

- Ösp, sérhæft námsúrræði Njarðvíkurskóla

- Heiðarskóli, Meistaravellir sérúrræði

- Eikin, Holtaskóli sérúrræði

- Háaleitisskóli, sérúrræði

- Akurskóli, sérúrræði

- Gerðaskóli, sérúrræði

- Vogar, félagsmiðstöð sérúrræði

- Hlýjan

- Íþróttafélagið NES

- Björgunarsveit Suðurnesja

- Suðurhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Suðurnesjum

- Unglingaráð körfuknattleiksdeildar UMFN

- Styrktarsjóður Ingvars

- Mia Magic

- Íþróttafélag fatlaðra Reykjavík

- Fimleikadeild Keflavíkur

- Félagsstarf fyrir eldra fólk í þjónustumiðstöðinni á Nesvöllum

- Heiðarholt

- Björk við Njarðvíkurskóla

- Bíladagur Birtu Maríu

- Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Keflavíkur.

Magnús Sverrir Þorsteinsson, Guðrún Sædal Björgvinsdóttir og Þorsteinn Þorsteinsson frá Blue Car afhentu styrkina 2026.

Styrkjafhending Blu Car frá Góðgerðarfesti 2026

Bílakjarninn
Bílakjarninn