Söfnun fyrir brjóstaskimunartæki fer vel af stað
Nærri helmingur safnaðist fyrir nýju tæki strax í upphafi söfnunarinnar. Tannlæknastofa gaf 10 milljónir króna. Söfnunin stendur til 18. nóvember
Söfnun fyrir brjóstaskimunartæki sem verður á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur farið vel af stað. Styrkir fyrir rúmlega 22 milljónir króna voru afhentir í bleikri messu í Keflavíkurkirkju sl. sunnudag. Nýtt tæki með uppsetningu kostar um 50 milljónir króna.
All nokkur félagasamtök og líknarfélög afhentu sína styrki en þar má nefna að Oddfellowstúkur í Reykjanesbæ gáfu 5 milljónir króna, Rotaryklúbbur Keflavíkur, Soroptimistaklúbbur Keflavíkur, Krabbameinsfélag Suðurnesja og fyrirtækin Aðaltorg og Couirtyard by Marriott gáfu öll hvert eina milljón króna í söfnunina. Þá gaf Tannlæknastofan að Hafnargötu 91 í Keflavík tíu milljónir króna í söfnunina. Fljótlega eftir fyrsta dag söfnunarinnar hefur talan hækkað í 29 milljónir, m.a. með veglegu 4 millj.kr. framlagi Isavia.
Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi, SAR, halda utan um söfnunina og er ábyrgðaraðili hennar en söfnunin stendur í mánuð. Tækinu verður komið fyrir í röntgenrými HSS og stofnunin hefur þegar hafið undirbúning að þessum skimunum með því að senda 3 geislafræðinga í verknám til þess að vinna með tækið í framtíðinni.
Ingvar Eyfjörð frá SAR segir þetta verkefni sem snerti okkur öll. „Með sameiginlegu átaki fyrirtækja, félagasamtaka og almennings getum við lagt okkar af mörkum til að bæta heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum og skapa betri möguleika til snemmgreiningar fyrir núverandi og komandi kynslóðir.
Við hvetjum fyrirtæki, einstaklinga og félagasamtök til þess að taka þátt í þessu mikilvæga samfélagsverkefni og styðja söfnunina með þeim hætti sem hver og einn getur. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. Öll framlög, stór sem smá, skipta máli í þessu samhengi. Við trúum því að öflugt samfélag byggist á samstöðu, ábyrgð og umhyggju. Með þátttöku í þessari söfnun erum við ekki aðeins að fjárfesta í tæki heldur í heilsu, öryggi og velferð kvenna á Suðurnesjum. Byrjunin lofar góðu en vonandi náum við að klára dæmið.“
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri HSS tók við styrkjunum í Kirkjulundi að lokinni bleikri messu. Hún segir að byrjun söfnunarinnar sé frábær og ljóst að samfélagið á Suðurnesjum sé sterkt. „Ég á bara eiginlega ekki orð yfir þessi viðbrögð og vil bara þakka innilega fyrir,“ sagði hún.

Eigendur Tannlæknastofunnar að Hafnargötu 91 í Keflavík gáfu 10 millj. kr. til söfnunarinnar.

Oddfellowar gáfu 5 milljónir til söfnunarinnar.

Konráð Lúðvíksson, fyrrverandi lækningaforstjóri HSS flutti ávarp.

Ingvar Eyfjörð frá Samtökum atvinnurekenda þakkaði gefendum en sagði mikilvægt að hvetja fólk og fyrirtæki að taka þátt í söfnuninni.






