Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Mannlíf

Heimsviðburður á heimavelli: Fljótandi dívan svífur inn í Stapasundlaugina
Þriðjudagur 20. október 2026 kl. 18:22

Heimsviðburður á heimavelli: Fljótandi dívan svífur inn í Stapasundlaugina

Reykjanesbær og Óperudagar 2026 bjóða íbúum og gestum upp á einstaka menningarupplifun þegar verkið Fljótandi dívan verður sýnt í Stapasundlaug laugardaginn 24. október.

Um er að ræða alþjóðlegt tónlistar- og sjónarspil eftir hollensku listakonuna Victorine Pasman sem hefur vakið athygli víða um heim og þykir viðburðurinn einstakur á heimsmælikvarða. Í verkinu svífur sópransöngkona um á vatninu í glæsilegum búningi á meðan hún flytur söng sem sameinar tónlist, myndlist og hreyfingu á óvenjulegan hátt.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Sýningarnar fara fram í innilaug Stapasundlaugar klukkan 13:00 og 14:00 laugardaginn 24. október og eru um 15 mínútur að lengd.

Í tilefni viðburðarins verður frítt í Stapasundlaug frá klukkan 12:00 til 15:00 og aðgangur að sýningunum er öllum opinn án endurgjalds.

Samstarf Reykjanesbæjar og Óperudaga gerir íbúum og gestum kleift að upplifa viðburð sem hefur heillað áhorfendur víða um heim, nú í fyrsta sinn í einstöku umhverfi Stapasundlaugar. Þar gefst gestum kostur á að verða vitni að heimsviðburði á heimavelli, þegar eitt athyglisverðasta sjónarspil Óperudaga kemur til Reykjanesbæjar.

 Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna á vef Reykjanesbæjar: https://www.reykjanesbaer.is/mannlif/vidburdir/fljotandi-divan

Bílakjarninn
Bílakjarninn