Óður fagnar fimm ára afmæli með tónleikum 18. okt.
Sviðslistahópurinn Óður fagnar 5 ára starfsafmæli í ár en frá árinu 2021 hefur hópurinn sýnt 75 sýningar af 5 klassískum óperum. Einn af forsprökkum hópsins er Keflvíkingurinn Sævar Helgi Jóhannsson.
Allar uppfærslur hópsins eru nýjar leikgerðir sem þau hafa þýtt á íslensku í bundnu máli. Á þessu leikári sýna þau La bohème í Borgarleikhúsinu sem var frumsýnd í desember á síðasta ári. Óður var Listhópur Reykjavíkur árið 2024 og hlaut verðlaun sem Flytjandi ársins í sígildri og samtímatónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum 2026 þar sem þýðing þeirra á La bohème var einnig tilnefnd sem Texti ársins.
Meðlimir Óðs eru óperusöngvararnir Þórhallur Auður Helgason, Sólveig Sigurðardóttir, Ragnar Pétur Jóhannsson og Áslákur Ingvarsson, píanóleikarinn Sævar Helgi Jóhannsson og leikstjórinn Tómas Helgi Baldursson.
Óður vinnur nú að sjöttu uppfærslu sinni og tónleikagestum býðst forsmekkur af henni á afmælistónleikum hópsins, sem haldnir verða í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 18. október kl. 17:00.
Á tónleikunum mun hópurinn flytja eftirlætiskafla sína úr öllum 5 óperuuppfærslum Óðs. Miðar eru í sölu á Tix.is en einnig má nálgast þá í gegnum heimasíðu Óðs, www.odur.is.








