Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Fréttir

Sér fyrir sér Keilisbraut sem „Laugaveg Ásbrúar“
Ómar Örn Sævarsson framkvæmdastjóri Icelandic Home í sameiginlegu eldhúsi í einni af íbúðablokk fyrirtækisins. VF/hilmarbragi
Miðvikudagur 14. október 2026 kl. 03:55

Sér fyrir sér Keilisbraut sem „Laugaveg Ásbrúar“

Það er stöðugur straumur fólks á skrifstofu Icelandic Home á Ásbrú. Þar vilja starfsmenn að leigjendur geti komið inn og rætt málin augliti til auglitis. Fyrirtækið hefur vaxið úr fimm húsum í níu frá ársbyrjun 2022 og er nú með um 650 leigueiningar. Ómar Örn Sævarsson framkvæmdastjóri segir breytingarnar á svæðinu slíkar að þeir sem hafi ekki komið lengi ættu að taka rúnt. Sjálfur sér hann fyrir sér að Keilisbrautin geti orðið „Laugavegur Ásbrúar“.

Viðtalið við Ómar er rétt komið af stað þegar samtöl og erindi á skrifstofunni minna á það sem hann er að lýsa. Fólk kemur og fer og hann víkur sér að málum þess áður en spjallið heldur áfram. Þannig vilja þau hafa þetta hjá Icelandic Home.

„Við viljum hafa þetta persónulegt. Fólk getur labbað inn á skrifstofuna og talað við okkur ef það er eitthvað,“ segir hann.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Ómar segir þessa nálgun hafa gefist betur en hann bjóst við. Stundum sé einfaldlega fljótlegra að leysa málin með stuttu samtali en tölvupóstum fram og til baka. Þess vegna séu höfuðstöðvarnar mitt á meðal íbúanna.

Úr fimm húsum í níu

Icelandic Home varð til í núverandi mynd við sameiningu þriggja félaga í ársbyrjun 2022. Þau höfðu verið með leiguhúsnæði á Ásbrú og í Njarðvík. Ómar hefur verið með frá upphafi og segir vöxtinn hafa orðið meiri og hraðari en hann sá fyrir sér.

„Þegar ég byrjaði voru þetta fimm hús en þau eru orðin níu núna.“

Leigueiningarnar eru um 650 og fyrirtækið sérhæfir sig í smærri rýmum. Þar eru meðal annars herbergi með sameiginlegri eldunaraðstöðu og íbúðir þar sem tveir leigjendur hafa sitt hvort herbergið. Við endurbætur hafi jafnframt verið lögð áhersla á að útbúa stúdíóíbúðir. Félagið hefur einnig horft til þess að geta vaxið með leigutökum sínum, þ.e.a.s. að fólk byrji í smærri einingum og færi sig svo í stærri einingar og íbúðir með breyttu fjölskyldumynstri er eitthvað sem þeir hafa lengi velt fyrir sér á þróunarreitum.

Húsnæðið hentar fólki sem kemur til lengri eða skemmri tíma til starfa á Íslandi, hvort sem er í byggingariðnaði, við flugvöllinn eða hjá öðrum fyrirtækjum á svæðinu. Fyrirtæki leigja einnig rými fyrir starfsfólk sem kemur vegna ákveðinna verkefna.

Þótt upphaflega hafi fremur verið horft til tímabundinnar dvalar hefur reynslan orðið fjölbreyttari. Til eru dæmi um fólk sem hefur verið hjá okkur í fjögur til fimm ár sem dæmi. Ástæðurnar séu mismunandi. Sumir séu að safna eða byggja upp annars staðar, aðrir búi einir og kjósi minni og hagkvæmari kost.

Ferðataskan með — og sængin

Ómar segir markmiðið vera að fólk geti komið sér fyrir án þess að þurfa fyrst að kaupa húsgögn og heimilistæki. Rúm, ísskápur og örbylgjuofn séu til staðar og hiti, rafmagn og internet innifalin í leigunni.

„Þú getur eiginlega komið með ferðatöskuna þína og byrjað að vinna á Íslandi.“

Þegar blaðamaður líkir þessu við að ganga inn á hótelherbergi kemur þó í ljós eitt atriði sem þarf að muna.

„Nema þú þarft að taka sængina með þér,“ segir Ómar.

Hann segir fyrirkomulagið líka létta undir með fyrirtækjum sem þurfa að útvega starfsfólki húsnæði. Leigjendur geti haft beint samband við Icelandic Home um það sem upp kemur. Auk þjónustu á skrifstofutíma sé sólarhringssímanúmer og útkallsþjónusta vegna brýnna mála fyrir íbúa.

„Ódýrt, öruggt og hreint“

Ómar dregur áherslur fyrirtækisins saman í þrjú orð.

„Ódýrt, öruggt og hreint.“

Þau séu leiðarljósið í rekstrinum og endurbótunum. Frá upphafi hafi verið unnið að því að taka húsin fyrir hvert af öðru, bæta sameiginleg rými og uppfæra öryggis- og eldvarnarkerfi. Nýjar innréttingar, gólfefni og málning séu hluti af þeirri vinnu, ásamt því að bæta ásýndina utandyra.

„Við vitum að við erum að bjóða minni einingar en ef við tikkum í þessi þrjú box erum við mjög ánægð.“

Hjá fyrirtækinu starfa um ellefu manns við skrifstofustörf, þrif, eftirlit og viðhald. Ómar segir það skipta máli að hafa eigið fólk sem þekki húsin og íbúana. Við stærri framkvæmdir sé hins vegar leitað til verktaka og iðnaðarmanna, nær eingöngu úr nágrenninu.

„Það er rosalega mikið af sterkum og góðum fyrirtækjum hérna á svæðinu sem við höfum átt góð samskipti við.“

Tvær blokkir fá nýtt hlutverk

Eitt stærsta verkefnið fram undan tengist nýju hjúkrunarheimili á Ásbrú. Ómar segir tvær þriggja hæða blokkir, sem hafa verið í útleigu hjá fyrirtækinu, eiga að fá þar nýtt hlutverk. Unnið sé að því að færa íbúana í annað húsnæði á vegum Icelandic Home.

Hann lýsir áformum um að tengja húsin saman og breyta þeim í hjúkrunarheimili með hátt í hundrað rýmum. HSS muni taka við rekstrinum, eins og áður hefur verið greint frá í Víkurfréttum.

„Þetta er alveg einstaklega spennandi verkefni.“

Ómar telur heimilið geta orðið mikla lyftistöng fyrir Ásbrú. Framkvæmdirnar skapi vinnu og þegar heimilið taki til starfa bætist stór vinnustaður við svæðið. Um leið komi annars konar starfsemi inn í hverfið. Félagið sjái einnig fyrir sér að geta boðið nýju starfsfólki upp á þá leigukosti sem félagið hefur yfir að ráða.

Breytingarnar muni líka sjást á húsunum og umhverfi þeirra. Hann sér fyrir sér snyrtilega garða og fallegri götumynd þegar framkvæmdum lýkur.

„Þessi gata ætti að verða Laugavegur Ásbrúar,“ segir hann um Keilisbrautina.

Ómar segir endurbætur á Ásbrú ekki einskorðast við hús Icelandic Home. Víða sé verið að vinna að byggingum og umhverfi þeirra og hann telur að sumir beri enn með sér mynd af svæðinu sem eigi síður við í dag.

Góð samskipti séu við þá aðila sem reki fyrirtæki á svæðinu og nefnir hann í því sambandi Konvin hótel og Sporthúsið sem eigi fasteignir við Keilisbraut. Allir þessir aðilar vilja stórbæta ásýnd Keilisbrautarinnar og nærumhverfis.

Hvetur fólk til að taka rúnt

„Ég myndi alveg mæla með því að fólk prófaði að taka einn rúnt ef það hefur ekki komið lengi. Það er alveg fullt í gangi hérna.“

Framtíðarsýn Icelandic Home sé að vaxa áfram með atvinnulífinu í kring. Þegar fyrirtæki ráðist í framkvæmdir og ráði starfsfólk þurfi húsnæði og þar telji hann Icelandic Home geta komið til móts við eftirspurnina.

„Markaðurinn ræður víst. Það er eftirspurn eftir þessu og við höfum reynt að mæta henni eftir bestu getu með kaupum á nýjum eignum nú þegar við erum að umbreyta tveimur fasteignum að Keilisbraut í hjúkrunarheimili“

Félagið standi á tímamótum nú þegar það hefur haslað sér völl við uppbyggingu hjúkrunarheimilis og hafi jafnframt áhuga á því, þegar fram í sækir og ríkið kallar á fleiri hjúkrunarrými, að bjóða upp á aukinn fjölda rýma t.d. með því að breyta næstu tveimur húsum við Keilisbraut með sama hætti.

Enn fremur horfi félagið til þess að byggja upp lífsgæðakjarna í tengslum við uppbyggingu hjúkrunarheimilis á svæðinu á milli hjúkrunarheimilisins við Keilisbraut og Sporthússins. Þar sjáum við fyrir okkur að byggja upp fjölbreytta búsetukosti í formi öryggis- og þjónustuíbúða, mögulega námsmannaíbúða, ýmis konar þjónustu, heilsugæslu svo eitthvað sé nefnt. Þetta er hugmynd sem við eigum eftir að ræða betur við sveitarfélagið og fleiri sem að koma,“ segir Ómar að lokum. Allt verði þetta gert í góðri sátt við samfélagið sem sé aðalmálið og þakkar hann að lokum sérstaklega fyrir mikinn stuðning sveitarfélagsins, fulltrúa ríkisins, HSS, Kadeco og nágranna við uppbyggingaráform félagsins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn