Safnahelgi
Safnahelgi

Fréttir

Stefna á að safna 50 milljónum fyrir nýju tæki til brjóstaskimunar á Suðurnesjum
Erla Guðmundsdóttir sóknarprestur í Keflavíkurkirkju, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri HSS og Ingvar Eyfjörð frá SAR. Konráð Lúðvíksson forfallaðist í myndatökunni en sést hér til vinstri.
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
þriðjudaginn 13. október 2026 kl. 04:44

Stefna á að safna 50 milljónum fyrir nýju tæki til brjóstaskimunar á Suðurnesjum

Stefnt er á að safna 50 milljónum króna fyrir brjóstaskimunartæki og uppsetningu þess hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Söfnunin hefst 18. október og stendur til 18. nóvember. Um er að ræða samstarf heilbrigðisstofnunarinnar, Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) og kirkjunnar. Markmiðið er að konur á Suðurnesjum geti sótt brjóstaskimun í heimabyggð og að fleiri konur fari í skimun.

„Þetta snýst um að aðgengi verði meira heldur en það hefur verið,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri HSS. Hún segir þátttöku kvenna í brjóstaskimun á Suðurnesjum hafa verið þá lægstu á landinu. Með árvekni og bættu aðgengi hafi þó tekist að þoka henni upp á við.

„Þátttakan var 42 prósent og með svona árvekni þá erum við komin upp í 55. En landsmeðaltalið er 65 prósent og við eigum dálítið langt í land með að ná því.“

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Vonir standa til að varanlegt brjóstaskimunartæki hjá HSS geti breytt þessari stöðu. Ferð til Reykjavíkur vegna skimunar geti tekið drjúgan hluta úr vinnudegi en með þjónustunni í heimabyggð verði auðveldara að komast frá vinnu og öðrum skyldum, það verði sem sagt hægt að „skreppa í skimun“.

Guðlaug Rakel segir sjálfa skimunina aðeins taka um tíu mínútur. Með góðu skipulagi eigi heimsóknin því að geta gengið hratt fyrir sig.

Atvinnurekendur hvattir til að greiða leiðina

Ingvar Eyfjörð, frá Samtökum atvinnurekenda á Reykjanesi, segir verkefnið bæði snúast um fjáröflun og vitundarvakningu. Samtökin vilja hvetja atvinnurekendur til að gera konum kleift að fara í skimun á launuðum vinnutíma.

Samstarfið við HSS hófst í fyrra þegar samtökin sendu félagsmönnum sínum hvatningu um þátttöku í skimun. Síðar kom Guðlaug Rakel á fjölmennan hádegisfund og kynnti uppbyggingu og breytingar hjá stofnuninni. Ingvar segir kynninguna hafa vakið sterkan vilja til að leggja sitt af mörkum.

„Það var hópur sem kom saman eftir fundinn og sagði: „Heyrðu, við bara klárum þetta mál.“

Samtökin taka að sér umsjón og ábyrgð á söfnuninni, þar á meðal söfnunarreikning. Einnig er unnið að greiðslugátt svo auðvelt verði að leggja verkefninu lið. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag framlaga verða kynntar þegar nær dregur.

Stefnt er að því að safna 50 milljónum króna, þ.e. til kaupa á tækinu en til viðbótar þurfi að standa straum af uppsetningu og aðstöðu.

„Okkur skiptir hvert einasta framlag máli,“ segir Ingvar.

Hann segir viðbrögðin við verkefninu hafa verið afar jákvæð. Fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar hafi sýnt vilja til að taka þátt. Verkefnið sé jafnframt hvatning til áframhaldandi uppbyggingar HSS sem kjarnastofnunar í samfélaginu.

Söfnunin hefst í bleikri messu

Erla Guðmundsdóttir, sóknarprestur í Keflavíkurkirkju, segir kirkjuna taka þátt í verkefninu með því að hefja söfnunina formlega í bleikri messu sunnudaginn 18. október.

„18. október er dagur heilbrigðisþjónustunnar í Þjóðkirkjunni. Jafnframt verður bleik messa og Margrét Sturlaugsdóttir, starfsmaður Krabbameinsfélagsins, verður hjá okkur og segir nokkur orð um félagið,“ segir Erla.

Hún segir daginn tengjast Lúkasi guðspjallamanni, sem var læknir, og þeirri hefð kirkjunnar að biðja fyrir sjúkum og þeim sem sinna heilbrigðisþjónustu. Messur af þessu tilefni séu haldnar sem næst 18. október, en í ár beri daginn upp á sunnudag.

„Við biðjum fyrir fólkinu okkar sem er að þjóna okkur og sinna sinni köllun á þessum vettvangi, öllum þeim sem tilheyra heilbrigðisþjónustunni okkar.“

Þannig verður upphaf söfnunarinnar fyrir brjóstaskimunartæki hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja jafnframt tilefni til að þakka fyrir störf heilbrigðisstarfsfólks og sýna því stuðning.

Erla segir hugmyndina hafa þróast í samtölum um uppbyggingu HSS og hvernig samfélagið gæti stutt við hana. Kynning Guðlaugar Rakelar á fundi Rótarýklúbbs Keflavíkur hafi meðal annars vakið stolt af stofnuninni og áhuga á að endurvekja þá hefð að fólk, fyrirtæki og félagasamtök taki höndum saman um tækjakaup.

Hún bendir á að bæði heilbrigðisstofnunin og kirkjan eigi ríka sögu samfélagslegs stuðnings. Fólk hafi lagt fram fé, vinnu og tíma til uppbyggingar.

„Ef þú áttir ekki aur til að gefa þá gafstu henni tíma,“ segir Erla um uppbyggingu kirkjunnar.

Sama hugsun geti átt við um heilbrigðisstofnunina. Þátttaka fólks styrki tengsl þess við stofnunina og auki stoltið af þjónustunni í heimabyggð.

„Hún er stofnun fólksins.“

Forvarnir og lífsgæði í forgrunni

Konráð Lúðvíksson, fyrrverandi lækningaforstjóri HSS, talar fyrir mikilvægi þess að efla forvarnir samhliða framförum í meðferð sjúkdóma. Hann telur ástæðu til að beina aukinni athygli og fjármunum að því að fyrirbyggja sjúkdóma og greina þá fyrr.

„Það er óumdeilt markmið góðrar heilbrigðisþjónustu að lengja lífið og um leið auka verðmæti hvers dags sem lifað er,“ segir Konráð.

Í þeirri nálgun skipti lífsgæði ekki síður máli en fjöldi æviára. Hann leggur áherslu á að nýta þau verkfæri sem þegar eru tiltæk til að greina sjúkdóma áður en þeir valda alvarlegum veikindum.

Konráð tengir söfnunina fyrir brjóstaskimunartækinu við þessi markmið. Með tæki á HSS sé ætlunin að auka samfellu í þjónustunni, stytta ferðalög og draga úr þeim tíma sem konur þurfi að verja í að sækja skimun. Hann lítur á verkefnið sem lið í því að efla HSS sem stofnun þar sem gott sé að sækja þjónustu og starfa.

Aðstaða og þjálfun undirbúin

Guðlaug Rakel segir þegar hafa verið valinn staður fyrir tækið á myndgreiningardeild HSS. Fyrirhugað sé að nýta rýmið þar sem tölvusneiðmyndatæki stofnunarinnar er til staðar.

Tækið sem safnað er fyrir verður af sömu gerð og brjóstaskimunartæki á Landspítala, jafnframt er gert ráð fyrir að geislafræðingar HSS fái þjálfun á Landspítala.

Guðlaug Rakel leggur áherslu á að þjálfun starfsfólks og gæði rannsóknanna verði í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru annars staðar. Úrlestur myndanna verði áfram hjá sömu miðlægu þjónustu sem les úr öðrum brjóstaskimunarmyndum.

Vonir standa til að hægt verði að taka tækið í notkun á næsta ári, helst í byrjun árs. Ingvar tekur þó fram að tímasetningin ráðist meðal annars af árangri söfnunarinnar, afhendingu tækisins og undirbúningi aðstöðunnar.

Verkefninu lýkur ekki
með tækjakaupunum

Viðmælendurnir leggja áherslu á að fylgja þurfi verkefninu eftir þegar söfnuninni lýkur. Tækið eitt og sér dugi ekki; hvatning, upplýsingar og gott aðgengi þurfi að haldast í hendur.

Guðlaug Rakel segir mikilvægt að ná til allra hópa samfélagsins. Hún telur aðgengi skýra hluta lítillar þátttöku og að jafnframt þurfi að huga sérstaklega að því að ná til kvenna af erlendum uppruna. Í síðasta árvekniátaki hafi þátttaka þeirra aukist, sem gefi góð fyrirheit.

Ingvar segir atvinnurekendur geta gegnt mikilvægu hlutverki til lengri tíma, bæði með upplýsingagjöf á vinnustöðum og því að auðvelda starfsfólki að sækja þjónustuna.

„Þetta er ekki bara söfnun. Við ætlum að taka þátt í umbreytingu í samfélaginu,“ segir hann.

Söfnunin stendur frá 18. október til 18. nóvember og er markmiðið skýrt: að færa brjóstaskimun nær konum á Suðurnesjum og auka þátttöku í henni. Söfnunin mun fara fram á vefnum sar.is en þar verður sett upp aðgengileg greiðslugátt til að leggja málstaðnum lið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn