Kadeco
Kadeco

Fréttir

Borun á tuttugu og einni sjóholu lokið við Eldisgarð á Reykjanesi - stórt skref í framkvæmdunum
Séð yfir framkvæmdasvæðið á Reykjanesi. Mynd: Samherji/Jón Steinar Sæmundsson
Mánudagur 12. október 2026 kl. 11:29

Borun á tuttugu og einni sjóholu lokið við Eldisgarð á Reykjanesi - stórt skref í framkvæmdunum

Nýverið lauk vinnu við borun á tuttugu og einni sjóholu fyrir fyrsta áfanga Eldisgarðs, nýrrar landeldisstöðvar Samherja fiskeldis á Reykjanesi. Aðgangur að hreinum jarðsjó er einn af lykilþáttum starfseminnar og ástæða þess að staðsetningin á Reykjanesi þykir sérstaklega hentug fyrir landeldi Samherja en þetta er stærsta fjárfestingaverkefni í sögu fyrirtækisins.

Alls voru boraðar 21 sjóhola, ýmist 36 eða 42 metra djúpar. Boranir hófust 12. janúar síðastliðinn og stóð verkefnið yfir í um níu mánuði. Það markaði því mikilvæg tímamót í uppbyggingu Eldisgarðs þegar Ræktunarsamband Flóa og Skeiða lauk borun síðustu holunnar.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Tvö teymi á vegum fyrirtækisins hafa skipst á að sinna borununum og unnið í vikulöngum lotum á löngum vöktum. Þegar síðustu borvaktinni lauk var hafist handa við að taka niður borinn og annan búnað og undirbúa brottför af framkvæmdasvæðinu.

Hreinn jarðsjór mikilvægur fyrir eldið

Jarðsjónum sem nýttur verður í Eldisgarði verður dælt upp úr sjóholunum. Sjórinn er fullsaltur og á hver hola að geta skilað um 500 lítrum af sjó á sekúndu.

Rannsóknir á sjónum úr holunum hafa leitt í ljós að hann er mjög tær, enda síast hann með náttúrulegum hætti í gegnum hraunið á Reykjanesi. Hitastig sjávarins er jafnframt ákjósanlegt og hentar vel til fiskeldisins.

Framkvæmdir við fyrsta áfanga í fullum gangi

Uppbygging fyrsta áfanga Eldisgarðs er nú í fullum gangi. Starfsfólk Samherja fiskeldis hefur komið sér upp starfsstöð á framkvæmdasvæðinu þar sem það vinnur ásamt verktökum að uppbyggingu stöðvarinnar.

Áætlað er að Eldisgarður rísi í þremur áföngum. Þegar stöðin verður fullbyggð er stefnt að því að þar verði hægt að framleiða um 36.000 tonn af óslægðum laxi á ári.

Um er að ræða stærsta fjárfestingarverkefni í sögu Samherja.

Um 60 störf þegar stöðin verður fullbyggð

Gert er ráð fyrir að um 30 manns starfi við landeldið þegar fyrsti áfanginn verður kominn í rekstur. Þegar uppbyggingu allra þriggja áfanganna lýkur er áætlað að starfsmenn verði um 60 talsins.

Flest störfin verða þekkingarstörf. Auk þess mun starfsemin í Eldisgarði njóta stuðnings þeirra 120 starfsmanna og sérfræðinga sem þegar starfa hjá Samherja fiskeldi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn