Suðurnesin sem drifkraftur vaxtar á ráðstefnu í Hljómahöll 14. október
Tækifæri til uppbyggingar á Suðurnesjum, erlend fjárfesting og samkeppnishæfni Íslands verða í brennidepli á ráðstefnu sem Kadeco stendur fyrir í Hljómahöll í Reykjanesbæ miðvikudaginn 14. október. Ráðstefnan hefst klukkan 14 og er haldin í samstarfi við Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Yfirskrift ráðstefnunnar er „Suðurnesin sem drifkraftur vaxtar“. Þar verður fjallað um hvernig markviss uppbygging á svæðinu og auknar erlendar fjárfestingar geta stuðlað að verðmætasköpun og styrkt stöðu Íslands í alþjóðlegri samkeppni.
Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, opnar ráðstefnuna. Bergur Ebbi er fundarstjóri og leggur línurnar fyrir daginn með inngangi undir yfirskriftinni „Af hverju Suðurnesin – af hverju núna?“.
Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco, fjallar um sögu, seiglu og alþjóðlega framtíð Suðurnesja. Í erindi hans verður sjónum beint að innviðum svæðisins og tækifærum til uppbyggingar fjölbreytts iðnaðar. Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, ræðir síðan hlutverk Keflavíkurflugvallar í samfélaginu og efnahagslífinu, verðmætasköpun hans og mikilvægi sem grunninnviðar og gáttar til Íslands.
Eftir kaffihlé tekur Mark O’Connell, stofnandi og stjórnarformaður OCO Global, til máls. Hann fjallar um hvernig Suðurnes og Ísland geta aukið möguleika sína á að laða að erlenda fjárfestingu í heimi sem tekur stöðugum breytingum.
O’Connell hefur á síðustu 25 árum byggt upp OCO Global, alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki á sviði viðskipta, útflutnings og fjárfestinga, sem er með skrifstofur víða um heim og yfir 100 sérfræðinga í vinnu. Hann hefur unnið með fyrirtækjum, útflutningsstofnunum og fjárfestingastofnunum um allan heim og gaf nýlega út bókina The Great FDI Hustle, sem fjallar um beina erlenda fjárfestingu.
Klukkan 16 hefjast pallborðsumræður um tækifæri Suðurnesja og hvernig lykilaðilar geti unnið saman að næsta vaxtarskeiði svæðisins. Þátttakendur eru Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Suðurkjördæmis, Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne gagnaversins, Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldis, og Páll Erland, forstjóri HS Veitna. Bergur Ebbi stýrir umræðunum.
Að pallborði loknu dregur Bergur Ebbi saman helstu þemu dagsins og varpar fram sýn á framtíðina. Frá klukkan 16:50 verður boðið upp á drykki og léttar veitingar í tilefni af 20 ára afmæli Kadeco. Hljómsveitin Þríó leikur tónlist við það tækifæri.
Skráning á ráðstefnuna er á www.kadeco.is








