Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Mannlíf

Opnunarviðburður Óperunnar víða allt land - Hljómahöll 1. nóv.
Sunnudagur 11. október 2026 kl. 15:29

Opnunarviðburður Óperunnar víða allt land - Hljómahöll 1. nóv.

Undir sömu stjörnu eru heitið á stórkemmtilegum viðburði þar sem söngvarar Óperunnar flytja okkur nokkrar fegurstu perlur óberubókmenntann en leikarar Þjóðleikhússins leiða áhorfendur í gegnum söguna.

Nýstofnuð Ópera mun hefja starfsemi sína með glæsilegum viðburði sem fengið hefur nafnið Undir sömu stjörnu. Alls verða sýningarnar fimm og munu fara fram víða um landið. Fjörið byrjar í Hofi á Akureyri þann 18. október og flyst í framhaldi af því á Eskifjörð, í Skálholt, í Reykjanesbæ og loks í Þjóðleikhúsið. Það er stefna hinnar nýju Óperu að ná til landsins alls – enda ópera þjóðarinnar allrar. Söngvarar Óperunnar og leikarar Þjóðleikhússins koma fram öll kvöldin en á hverjum stað munu sinfóníuhljómsveitir, kórar og gestasöngvarar úr nærumhverfi vera í fyrirrúmi.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
  1. október - Hof, Akureyri
  2. október - Eskifjarðarkirkja
  3. nóvember - Hljómahöllin, Reykjanesbær
  4. nóvember - Skálholt
  5. nóvember - Þjóðleikhúsið

Ástarstjarna yfir Hraundranga og kvöldstjarna Wagners

Sama ár og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson orti ljóð sitt um „Ástarstjörnu yfir Hraundranga“ samdi Richard Wagner óperuaríu til „Kvöldstjörnunnar“ sunnar í Evrópu. Skyldi það hafa verið sama tindrandi himinstjarnan sem kveikti hugmyndir beggja? Í þessari veglegu söngdagskrá er saga óperunnar rakin, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum. Söngvarar Óperunnar flytja okkur nokkrar fegurstu perlur óperusögunnar en leikarar Þjóðleikhússins leiða áhorfendur í gegnum söguna. Fróðleik og skemmtun er hér fléttað saman á léttleikandi hátt.

Söngvarar Óperunnar: Gunnar Björn Jónsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir, Mäntylä og Kristján Ingi Jóhannesson.

Leikarar Þjóðleikhússins: Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason

Listrænir stjórnendur

Handrit og leikstjórn: Ólafur Egill Egilsson

Tónlistarstjóri: Richard Schwennicke

Búningar: Eva Björg Harðardóttir

Aðrir aðstandendur

Framleiðslustjóri: Jara Hilmarsdóttir

Klæðskeri: Helga Lúðvíksdóttir

Bílakjarninn
Bílakjarninn