Safnahelgi
Safnahelgi

Fréttir

Ljósbrá leiðir nýtt fyrirtæki í þjónustu við gagnaver
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 10. október 2026 kl. 09:13

Ljósbrá leiðir nýtt fyrirtæki í þjónustu við gagnaver

Keflvíkingurinn Ljósbrá Logadóttir hefur verið ráðin til að leiða nýtt félag sem mun styðja við uppbyggingu og rekstur gagnavera. Ljósbrá verður framkvæmdastjóri félagsins en unnið er að stofnun þess. 

Nýtt félag verður í meirihlutaeigu sömu hluthafa og Rafal og mun starfa náið með félaginu. Rafal ehf. er íslenskt tækni- og rafverktakafyrirtæki sem sérhæfir sig í uppbyggingu raforkuinnviða, iðnaðarrafmagni, fjarskiptum og framleiðslu rafbúnaðar. Fyrirtækið hefur vaxið verulega á undanförnum árum og kemur að stórum framkvæmdum í orkugeiranum, meðal annars á Suðurnesjum í Svartsengisvirkjun og Reykjanesvirkjun. Þá keypti félagið nýlega allt hlutafé í fyrirtækinu Bergraf í Reykjanesbæ.

Í tilkynningu segir að félagið muni byggja á þekkingu og reynslu Rafal af raforkuinnviðum og þróa lausnir og þjónustu í nánu samstarfi við gagnaver og birgja hér heima og erlendis. Fyrirtækið vilji áfram vera traustur samstarfsaðili gagnavera, hér heima og erlendis.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Ljósbrá sem er með Executive MBA gráðu frá Háskóla Íslands kemur frá Advania þar sem hún leiddi meðal annars verkefni í gagnaverum. Hún hefur víðtæka reynslu úr rekstri og upplýsingatækni og starfaði m.a. hjá Íslandsbanka í átta ár þar sem hún leiddi innkaup og samningagerð við birgja.

„Það er spennandi að byggja upp nýtt félag á sviði sem er í jafn örum vexti. Við byggjum á traustum grunni Rafal og ætlum okkur að vera gagnaverum öflugur bakhjarl, hér á landi og utan landsteinanna,“ segir Ljósbrá sem er fæddur og uppalinn Keflvíkingur, dóttir Bjargeyjar Einarsdóttur og Loga Þormóðssonar heitins. Þau voru fyrir þremur áratugum öflugir ferskfiskútflytjendur, m.a. frumkvöðlar í útflutningi á ferskfiski með flugi og ráku fiskverkunina Tros í Sandgerði.

Bílakjarninn
Bílakjarninn