Tap hjá Grindavík og Njarðvík í fyrstu umferð
Íslandsmeistarar Grindavíkur og Njarðvíkingar töpuðu í fyrstu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta, bæði á heimavelli. Grindavík tapaði fyrir KR og Njarðvík fyrir Tindastóli.
UMFG-KR 80-91
Grindvíkingar leiddu með fimm stigum í hálfleik gegn Vesturbæingum en KR-ingar tóku síðan öll völd í síðari hálfleik og unnu hann með tuttugu stigum. Lokatölur 80-91 og sigur KR vann sanngjarn og nokkuð ljóst að liðið verður í titilbaráttuni í ár. Grindavík er ekki komið með alla sína menn og því erfitt að dæma liðið út frá þessum fyrsta deildarleik ársins. Jemery Pargo var þó mættur, þessi rúmlega fertugi snillingur en hann skoraði sex þrista og 19 stig. Hann gerði líka mistök og það verður áhugavert að sjá hvernig kappanum gengur í vetur en hann tryggði liðinu Íslandsmeistaratitil í vor með magnaðri frammistöðu gegn Tindastóli.
UMFN-Tindastóll 77-85
Njarðvíkingar eru í leikmannavandræðum. Þá vantar leikmenn í hópinn og gerðu sér lítið fyrir og fengu hinn 43 ára Fotios Lampropoulos úr skrifstofuvinnu hjá ameríska sendiráðinu til að fylla í leikmannahópinn. Hann stóð sig ótrúlega vel þegar hans naut við og verður með UMFN eitthvað áfram.
Njarðvíkingar héldu í við Stólana lengst af og unnu t.d. annan leikhluta með níu stigum og voru bara tveimur stigum undir í hálfleik. Tindastóll er með eitt best mannaða lið landsins og þó þeir hafi misst tvo leikmenn útaf vegna meiðsla kláruðu þeir leikinn. Lokatölur 77-85.
Þegar litið er yfir stigaskor Njarðvíkingar má sjá að þeir eru með mikið breytt lið en sex stigahæstu leikmenn liðsins léku ekki með liðinu á síðasta tímabili.
Hilmar Bragi mætti með myndavélina á leik UMFN og Tindastól og má sjá myndasafn í fréttinni hér neðar.
Grindavík-KR 80-91 (18-18, 20-15, 15-23, 27-35)
Grindavík: Jeremy Raymon Pargo 19/6 fráköst/9 stoðsendingar, Mirza Bulic 17/8 fráköst, Unnsteinn Rúnar Kárason 14/4 fráköst, Arnór Tristan Helgason 14/5 fráköst, Ragnar Örn Bragason 9/6 fráköst, Valur Orri Valsson 5, Kristófer Breki Gylfason 2, Nökkvi Már Nökkvason 0, Patrekur Atlason 0, Daniel Mortensen 0.
KR: Linards Jaunzems 28/13 fráköst, Roberts Berzins 17, Adam Ramstedt 17/19 fráköst, Reynir Bjarkan Barðdal Róbertsson 10/4 fráköst, Rafail Lanaras 10/7 fráköst/5 stoðsendingar, Lars Erik Bragason 7, Þorvaldur Orri Árnason 2/4 fráköst, Sturla Böðvarsson 0, Friðrik Anton Jónsson 0, Hallgrímur Árni Þrastarson 0, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson 0.
Njarðvík-Tindastóll 77-85 (15-26, 27-18, 19-21, 16-20)
Njarðvík: Spencer Svejcar 23/6 fráköst, Makye Richard 19/6 fráköst/6 stoðsendingar, Aleksa Ilic 14/10 fráköst, Brynjar Kári Gunnarsson 12, Fotios Lampropoulos 3, Hugi Hallgrimsson 3/9 fráköst, Snjólfur Marel Stefánsson 3, Bóas Orri Unnarsson 0, Logi Örn Logason 0, Ómar Orri Gíslason 0, Isaiah Coddon 0, Guðmundur Aron Jóhannesson 0.
Tindastóll: Taiwo Hassan Badmus 18/6 fráköst, Júlíus Orri Ágústsson 15/5 stoðsendingar, Sigtryggur Arnar Björnsson 14, Demerquis d´Angelo Bost 12/4 fráköst/8 stoðsendingar, Ade Taqqiyy Henry Murkey 10, Adomas Drungilas 8/5 fráköst, Pétur Rúnar Birgisson 6, Ragnar Ágústsson 2/4 fráköst, Haukur Davíðsson 0, Davis Geks 0.






