Samfylking og óháðir og Framsókn og óháðir ræða meirihlutasamstarf
Samfylking og óháðir og Framsókn og óháðir í Suðurnesjabæ hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Oddvitar flokkanna, þeir Svavar Grétarsson frá S-lista og Anton Guðmundsson frá B-lista, segja viðræðurnar ganga vel og ekki sé málefnalegur ágreiningur á milli framboðanna tveggja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Framsókn í Suðurnesjabæ sem var birt á samfélagsmiðlum.
Þar segir að bæði framboð vinni að því að byggja upp sterkt og öflugt samfélag í Suðurnesjabæ. Munu framboðin leitast eftir því að Alexandra Jóhannesdóttir muni starfa áfram sem bæjarstjóri Suðurnesjabæjar enda um öflugan einstakling þar að ræða.
Ef viðræður ganga áfram vel má eiga von á að skrifað verði undir málefnasamning um komandi helgi.
Ekki verða veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.






