Sunnudagur 6. september 2026 kl. 14:06

Sibbi með Presley-takta á Ljósanótt

Sigurbjörn Arnar Jónsson, eða Sibbi Presley, steig á svið á Ljósanótt og gladdi gesti með flutningi á rokkslagaranum þekkta, Blue Suede Shoes. Hann var fulltrúi 50 ára árgangsins í árgangagöngunni og í stað þess að senda ræðumann á svið sendi árgangurinn Sibba með tvö Presleylög.

Lagið á sér sérstakan stað í hjarta Sigurbjörns, en það var einmitt allra fyrsta lagið sem hann flutti opinberlega þegar hann tók þátt í söngkeppninni Holtavision árið 1992 og hafnaði þar í öðru sæti.

Þótt upprunalega upptakan frá þeim tíma hafi glatast lifir minningin enn og flutningurinn á Ljósanótt vakti mikla kátínu meðal áhorfenda á öllum aldri sem tóku honum vel.

Í spilaranum er flutningur Sibba á laginu.