Kadeco
Kadeco

Fréttir

María Rós ráðin sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar
Fimmtudagur 8. október 2026 kl. 13:25

María Rós ráðin sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar

María Rós Skúladóttir hefur verið ráðin í starf sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjanesbæjar. Hún hefur víðtæka reynslu af velferðarmálum, stjórnun og opinberri stjórnsýslu og hefur áður gegnt stjórnunarstöðu hjá sveitarfélaginu.

María Rós er félagsráðgjafi með MLM-gráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst, með áherslu á verkefnastjórnun. Hún starfar nú á ráðgjafarsviði KPMG sem sérfræðingur í rekstrarráðgjöf, með sérstaka áherslu á velferðarþjónustu.

Áður en hún hóf störf hjá KPMG gegndi hún meðal annars stöðu forstöðumanns öldrunarþjónustu hjá Reykjanesbæ og deildarstjóra félagsþjónustu Suðurnesjabæjar. Í störfum sínum hefur hún borið ábyrgð á rekstri, mannauðsmálum, fjárhagsáætlunum og stefnumótun.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

María Rós hefur jafnframt leitt fjölbreytt þróunar- og breytingaverkefni með áherslu á að efla gæði þjónustu, auka skilvirkni í rekstri og stuðla að faglegri þróun.

Tilkynnt verður síðar hvenær hún tekur við starfinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn