Ungt fólk leiðir samtal kynslóðanna í FS 10. október
Landsmönnum á öllum aldri er boðið að hittast um land allt og ræða spurninguna: Hvernig samfélag viljum við skapa saman?
Laugardaginn 10. október, frá kl. 14 til 17, verður efnt til Samtals um allt land og á Suðurnesjum munu ungir sem eldri hittast á sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja og taka samtalið. Ungt fólk leiðir samtölin en öllum kynslóðum er boðið að taka þátt, hlusta á ólík sjónarmið og ræða hvað hvert okkar getur lagt af mörkum til mótunar framtíðarinnar. „Við stefnum að því að fjölmenna og allir nemendur í FS sem koma munu fá gjafabréf því það er mikilvægt að fá unga fólkið í spjallið,“ segir Hafþór Nói Hjaltason, formaður NFS, nemendafélags skólans.
Hugmyndin kviknaði á Bessastöðum
Samtal, félag til almannaheilla, stendur að verkefninu í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld. Hugmyndin kviknaði á Bessastöðum á fundi sem haldin var að frumkvæði forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, en hún jafnframt verndari verkefnisins.
Samtalið fer fram í tengslum við 40 ára afmæli leiðtogafundarins í Höfða. Árið 1986 settust leiðtogar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, Ronald Reagan og Mikhail Gorbatsjov niður í Reykjavík til samtals, meðal annars til að ræða ágreining og vopnakapphlaup ríkjanna tveggja. Fundinum lauk án niðurstöðu en samtal þeirra varð mikilvægur áfangi á leið til samnings um fækkun kjarnorkuvopna.
„Nú í október viljum við því ekki aðeins minnast þess sem gerðist í Reykjavík fyrir fjórum áratugum. Við viljum líka minna okkur og aðra á gildi samtalsins. Markmiðið er ekki að við verðum sammála um allt - heldur að við lærum hvert af öðru. Og að við leitum að því sem sameinar okkur án þess að óttast það sem okkur greinir á um.
Við sem eldri erum berum sannarlega ríka ábyrgð á þeim forsendum sem framtíð þeirra yngri byggist á. Þess vegna er Samtal ekki aðeins samtal milli ungs fólks. Það er samtal kynslóða um framtíðina. Hugmyndin er að foreldrar, afar og ömmur, kennarar, atvinnurekendur, stjórnmálamenn, listafólk og almenningur um allt land setjist niður með unga fólkinu til að rækta traust og tengsl okkar hvert við annað og til að gefa þeim sem eru að vaxa úr grasi tækifæri til hafa áhrif á eigin framtíð.“
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands.
Lóðsar leiða spjallið
Fólk á aldrinum 16–30 ára getur boðið sig fram sem „lóðsa“ og fengið þjálfun til að leiða samtölin en foreldrar, afar og ömmur, kennarar, atvinnurekendur, stjórnmálamenn, listafólk og almenningur um allt land er hvött til að setjist niður með unga fólkinu.
Samtöl geta farið fram í skólum, á vinnustöðum, hjá félagasamtökum og menningarstofnunum, á heimilum eða öðrum vettvangi víða um land. Upplýsingar um þátttöku og skráning fyrir þátttakendur og „lóðsa“ eru á vefnum talasaman.is
Afrakstur samtala laugardagsins verður birtur á vefnum talasaman.is í lok dags og verður einnig kynntur á sérstökum viðburði í Hörpu sunnudaginn 11. október kl. 14.00.
„Okkur formönnum nemendafélaga var boðið til forsetans til að fá kynningu á málinu og mér líst mjög vel á þetta. Það er frábært að fá kynslóðirnar saman til að taka spjallið, fá ólíka sýn á ýmsa hluti eins og gengur og gerist en mikilvægt að við fetum brautina áfram saman,“ sagði Hafþór Nói.








