Þriðjudagur 15. september 2026 kl. 12:16

Fimmtug fjölbraut í Suðurnesjamagasíni

Fjölbrautaskóli Suðurnesja fagnar 50 ára afmæli um þessar mundir. Tímamótunum var fagnað síðasta föstudag og laugardag með tónleikum og afmælishátíð í skólanum.

Suðurnesjamagasín Víkurfrétta tók hús á fjölbraut í síðustu viku og ræddi við skólameistara, starfsfólk og nemendur á tímamótunum.