Minnihlutinn segir skólaframkvæmdir hafa farið 272 milljónir fram úr áætlun
Minnihlutinn í bæjarstjórn Reykjanesbæjar gagnrýnir meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks fyrir að framkvæmdir við Myllubakkaskóla og Holtaskóla hafi haldið áfram án samþykktra viðbótarfjárheimilda. Í bókun minnihlutans segir að bæjarráði hafi 1. október verið tilkynnt um 272 milljóna króna frávik frá fjárfestingaáætlun vegna framkvæmdanna.
Samkvæmt bókuninni var alls 1.440 milljónum króna úthlutað til framkvæmda við skólana í fjárfestingaáætlun ársins 2026. Þeim verkþáttum sem áætlunin náði til átti að ljúka í lok ágúst.
Í júní hafi komið fram ósk um viðauka til að halda framkvæmdum áfram frá september til ársloka. Afgreiðslu málsins hafi verið frestað og meirihlutinn þá kallað eftir heildstæðri kostnaðaráætlun og uppfærðri tímaáætlun, þar sem einnig yrði gerð grein fyrir fjármagnskostnaði og öðrum kostnaðarþáttum.
Minnihlutinn segir að á þeim tíma hafi 65 prósent samþykktra verkþátta ársins verið lokið í Myllubakkaskóla og 79 prósent í Holtaskóla. Næstu 14 vikur hafi ekkert annað erindi um viðauka vegna framkvæmdanna komið til bæjarráðs en framkvæmdir haldið áfram.
„Frá lokum júní til byrjunar október var ráðist í verkþætti sem voru ekki í samþykktri fjárfestingaráætlun án þess að viðauki hefði verið samþykktur,“ segir í bókuninni.
Krefjast skýringa á ákvörðunum
Minnihlutinn kveðst áfram styðja enduruppbyggingu skólanna en segir fjárhagslegt svigrúm sveitarfélagsins setja framkvæmdunum mörk. Í bókuninni er rifjað upp að á síðasta kjörtímabili hafi meirihluti Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar samþykkt að hækka lánaheimild sveitarfélagsins um 800 milljónir króna, í fjóra milljarða, til að flýta enduruppbyggingu grunnskólanna. Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið mótfallinn þeirri ákvörðun.
Bókunarhöfundar segja fjárhagsáætlun sveitarfélagsins bindandi og vísa til þess að almennt sé óheimilt samkvæmt sveitarstjórnarlögum að víkja frá henni nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka. Þeir krefjast þess að meirihlutinn upplýsi hvernig ákvarðanir um áframhald framkvæmdanna hafi verið teknar.
Þá gagnrýna þeir að hagræðingarteymi bæjarstjóra hafi ekki brugðist við á umræddu tímabili. Að mati minnihlutans hafi annaðhvort eftirlit með framkvæmdunum brugðist eða ákveðið hafi verið að halda þeim áfram án nauðsynlegra fjárheimilda. Í báðum tilvikum beri meirihlutanum að upplýsa málið og axla pólitíska ábyrgð.
„Það er óásættanlegt að meirihluti sem krafðist betri áætlana í júní komi af fjöllum þegar reikningurinn er lagður fram í október,“ segir í bókuninni.
Undir bókunina rita Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hámundur Örn Helgason, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir.
Bókunin í heild:
Framkvæmdir keyrðar tæplega 300 milljónum fram úr áætlun
Það er sorglegt að sjá þann neikvæða viðsnúning sem orðið hefur í fjárfestingum og stýringu fjármagns í Reykjanesbæ eftir aðeins fjóra mánuði undir stjórn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins.
Í fjárfestingaáætlun ársins 2026 var alls 1.440 milljónum króna úthlutað til framkvæmda við Myllubakkaskóla og Holtaskóla. Framkvæmdirnar gengu samkvæmt áætlun og átti að ljúka þeim verkþáttum í lok ágúst.
Í júní kom fram ósk um viðauka til að halda framkvæmdum við skólana áfram frá september til loka desember. Afgreiðslu málsins var frestað en meirihlutinn bókaði eftirfarandi:
„telur meirihlutinn nauðsynlegt að fyrir liggi heildstæð kostnaðaráætlun og uppfærð tímaáætlun fyrir verkefnið. Í þeirri greiningu skal jafnframt gera grein fyrir fjármagnskostnaði og öðrum kostnaðarþáttum sem kunna að hafa áhrif á heildarumfang verkefnisins.“
Á þeim tíma var búið að framkvæma 65% af samþykktum verkþáttum ársins í Myllubakkaskóla og 79% í Holtaskóla. Næstu 14 vikurnar kom ekkert annað erindi til bæjarráðs um viðauka vegna framkvæmdanna. Samt héldu framkvæmdirnar áfram. Frá lok júní til byrjunar október var ráðist í verkþætti sem voru ekki í samþykktri fjárfestingaáætlun, án þess að viðauki hefði verið samþykktur.
Þann 1. október var bæjarráði svo tilkynnt um „frávik“ frá fjárfestingaáætlun upp á 272 milljónir króna. Engar skýringar hafa verið veittar og enginn hefur axlað ábyrgð. Meirihlutinn kemur af fjöllum.
Mikilvæg uppbyggingarverkefni
Við höfum stutt og styðjum áfram enduruppbyggingu Myllubakkaskóla og Holtaskóla. Fjárhagslegt svigrúm sveitarfélagsins hefur þó sett uppbyggingunni mörk og okkur ber að haga framkvæmdum í samræmi við það. Á síðasta kjörtímabili samþykkti meirihluti Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar að hækka lánaheimild sveitarfélagsins um 800 milljónir króna, í alls fjóra milljarða. Markmiðið var að verja meira fjármagni til enduruppbyggingar grunnskólanna og ljúka verkefnunum fyrr. Þessu var Sjálfstæðisflokkurinn algjörlega mótfallinn.
Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að fjárhagsáætlun sveitarfélags er bindandi. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum er almennt óheimilt að víkja frá henni nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka. Meirihlutinn verður að gera grein fyrir því hvernig staðið var að ákvörðunum um áframhald framkvæmdanna.
Eftir aðeins fjóra mánuði við stjórn bæjarins verða Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn að svara fyrir þessa meðferð fjármuna. Það vekur sérstaka athygli að hagræðingarteymi bæjarstjóra flaggaði engum viðbrögðum á umræddum 14 vikum. Annað hvort hefur eftirlit meirihlutans með framkvæmdunum brugðist eða ákvarðanir verið teknar um að halda þeim áfram án nauðsynlegra fjárheimilda. Í báðum tilvikum ber meirihlutanum að upplýsa málið og axla pólitíska ábyrgð á stjórn fjármála sveitarfélagsins.
Það er óásættanlegt að meirihluti sem krafðist betri áætlana í júní komi af fjöllum þegar reikningurinn er lagður fram í október.
Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hámundur Örn Helgason, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir.







