Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Fréttir

Vilja fjölga störfum utan hefðbundinna atvinnugreina á Suðurnesjum
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
þriðjudaginn 6. október 2026 kl. 08:20

Vilja fjölga störfum utan hefðbundinna atvinnugreina á Suðurnesjum

Atvinnulíf Suðurnesja er að mati höfunda atvinnuramma svæðisins of háð fáum greinum, einkum flugi, ferðaþjónustu, sjávarútvegi og orkutengdri starfsemi. Í rammanum fyrir árin 2026–2030 er lögð áhersla á að byggja upp nýjar stoðir í þekkingariðnaði, líftækni, grænni tækni og nýsköpun.

Í skjalinu er vísað til þess hve viðkvæmt svæðið hefur verið fyrir breytingum í flugi og ferðaþjónustu. Höfundar telja fjölbreyttari störf geta dregið úr áhrifum slíkra sveiflna og aukið þann ávinning sem atvinnuuppbygging skilar íbúum Suðurnesja.

Mælanleg markmið til 2030

Haustdagar
Haustdagar

Stefnt er að því að fjölga störfum á Suðurnesjum um 1.000 til 2.000 fyrir árið 2030 og auka hlutfall starfa í þekkingar- og nýsköpunargreinum um 20 til 30%. Einnig er markmiðið að fjölga nýjum fyrirtækjum utan ferðaþjónustu um 10 til 15%.

Ramminn leggur til aukinn stuðning við sprotafyrirtæki, þróun atvinnusvæða fyrir nýjar greinar og samstarf við rannsóknar- og menntastofnanir. Áhersla er jafnframt lögð á að menntun íbúa þróist í takt við störfin sem verða til.

Um ferðaþjónustu segir að horfa eigi meira til tekna og gæða en fjölda gesta, dreifa heimsóknum betur yfir árið og svæðið og draga úr álagi á náttúru og innviði.

Bílakjarninn
Bílakjarninn