Heilsuvika
Heilsuvika

Fréttir

Krefjast samráðs áður en brottfararstöð verður staðsett á Suðurnesjum
Mánudagur 5. október 2026 kl. 08:41

Krefjast samráðs áður en brottfararstöð verður staðsett á Suðurnesjum

SSS vill heildstætt mat á áhrifum brottfararstöðvar og hugsanlegs flutnings móttökumiðstöðvar

Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, SSS, krefst þess að stjórnvöld hafi formlegt samráð við sveitarfélögin áður en ákvörðun verður tekin um staðsetningu brottfararstöðvar fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Fundurinn vill jafnframt að lagt verði mat á áhrif stöðvarinnar á þjónustu og innviði svæðisins.

Í samþykktri ályktun segir að staðsetning stöðvarinnar hafi ekki legið fyrir þegar lög um hana voru samþykkt og sé enn óákveðin. SSS gagnrýnir að samráð við sveitarfélögin hafi verið ófullnægjandi og vill að sjónarmið þeirra fái raunverulegt vægi við endanlega ákvörðun. Alþingi samþykkti lög um brottfararstöð fyrr á árinu.

Horfa til heildaráhrifa á svæðið

Í ályktuninni er vísað til þeirrar afstöðu bæjarstjórnar Reykjanesbæjar að fyrsti kostur sé staðsetning innan athafnasvæðis Isavia á Keflavíkurflugvelli. Aðalfundurinn tekur undir að staðsetning og umfang starfseminnar verði að taka mið af álagi á innviði, þjónustu og íbúa.

Haustdagar
Haustdagar

SSS vill einnig fá skýr svör um hvort til standi að flytja móttökumiðstöð umsækjenda um alþjóðlega vernd frá Reykjavík til Suðurnesja. Að mati sambandsins hefur ekki verið lagt heildstætt mat á samanlögð áhrif þess að reka bæði brottfararstöð og móttökumiðstöð á svæðinu.

Sambandið nefnir sérstaklega áhrif á skóla, leikskóla, heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu og löggæslu. Ef starfsemin hefur í för með sér aukið álag krefst aðalfundurinn þess að sveitarfélög og ríkisstofnanir á svæðinu fái fjármagn til að mæta því.

Bílakjarninn
Bílakjarninn