Vegagerðin
Vegagerðin

Fréttir

Harma þá stöðu sem upp er komin
Sunnudagur 4. október 2026 kl. 21:29

Harma þá stöðu sem upp er komin

„Samfylkingin og óháðir í Suðurnesjabæ hafa slitið meirihlutasamstarfi sínu við Sjálfstæðisflokkinn og óháða. Ákvörðun þess efnis var tekin af aðal- og varamönnum framboðsins í dag. Hana má rekja til trúnaðarbrests í samstarfinu sem ekki var hægt að líta framhjá,“ segir í yfirlýsingu frá Samfylkingunni og óháðum í Suðurnesjabæ.

Þar segir að fulltrúar Samfylkingar og óháðra fara nú yfir stöðu mála með sínu baklandi. Hvort Samfylkingin og óháðir fari í meirihlutasamstarf með öðrum flokki er enn óráðið, en S-listinn hlaut rúm 34% atkvæða í sveitarstjórnarkosningunum í vor og þrjá bæjarfulltrúa kjörna.

Haustdagar
Haustdagar

„Fulltrúar S-listans harma þá stöðu sem upp er komin en vilja jafnframt taka fram að nú er mikilvægt að varða næstu skref vel og vandlega, enda mikilvæg vinna framundan sem snýr að fjárhagsáætlunarvinnu fyrir sveitarfélagið. Þar eru mörg mikilvæg úrlausnarefni, meðal annars málefni fatlaðs fólks og eldri borgara,“ segir að endingu í yfirlýsingunni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn