Óttast að sveitarfélögin sitji uppi með kostnað við breytingar á heilbrigðiseftirliti
Lífeyrisskuldbinding HES metin á 122,7 milljónir króna
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum krefst þess að ríkið fjármagni að fullu yfirfærslu verkefna Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, HES, til ríkisstofnana. Fundurinn vill tímasetta áætlun um hvað verður um starfsfólk, verkefni, eignir og skuldbindingar eftirlitsins þegar nýtt fyrirkomulag tekur gildi um næstu áramót.
Breytingar á lögum gera ráð fyrir að matvælaeftirlit færist frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga til Stofnunar atvinnuveganna, sem tekur til starfa 1. janúar 2027. Heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit færist jafnframt til ríkisins. Þar með leggst grunnur að því að HES hætti starfsemi í núverandi mynd.
Vilja svör um starfsfólk og skuldbindingar
Í samþykktri ályktun segir SSS enn óljóst hvernig farið verði með réttindi starfsfólks og hvaða verkefni verði áfram á ábyrgð sveitarfélaganna. Sambandið nefnir meðal annars staðbundnar samþykktir, úrgangsmál, fráveitur, loftgæði og hávaða.
Þá er í ályktuninni vísað til lífeyrisskuldbindingar HES sem metin var á 122,7 milljónir króna í árslok 2025. SSS vill fá skýrt fram hvernig gert verði upp við skuldbindingar embættisins og hver greiði fyrir flutning gagna og kerfa.
Fundurinn leggur áherslu á að þjónusta við íbúa og fyrirtæki rofni ekki við breytinguna. Hann vill jafnframt að staðbundin þekking á vatnsvernd, matvælaöryggi og náttúruvá haldist á svæðinu og að stöðugildi þar verði varðveitt.









