Skoða frístundaakstur fyrir börn í Suðurnesjabæ
Íþrótta- og tómstundaráð Suðurnesjabæjar vill kanna leiðir til að auðvelda börnum og ungmennum að komast í íþrótta- og tómstundastarf. Málið var tekið fyrir að fengnu erindi frá barna- og unglingaráði Reynis/Víðis.
Ráðið óskar eftir að skoðaðar verði mismunandi útfærslur á frístundaakstri. Þar á meðal verði kannað hvort hægt sé að aðlaga núverandi almenningssamgöngur og hvað það myndi kosta að niðurgreiða strætókort.
Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um að hefja frístundaakstur eða niðurgreiða kortin.








