Fúll á móti sendir grein í Víkurfréttir
Í vor og sumar birtu Víkurfréttir tvær aðsendar greinar um fiskvinnslu okkar við Brekkustíg 22–24 í Njarðvík. Sú fyrri birtist 7. maí undir fyrirsögninni „Heilbrigðiseftirlitslaus fiskvinnsla“, sú seinni 30. júní. Þar sagði að rusl fyki frá vinnslunni um hverfið, að fiskblandað vatn læki út á götu og að vinnslan hefði starfað árum saman án leyfis. DV skrifaði svo frétt upp úr greinunum 5. júlí.
Greinarnar voru fullar af rangfærslum og fullyrðingum sem enginn hafði kannað. Samt birtust þær tvisvar, án þess að nokkur athugaði hvort fótur væri fyrir þeim. Svo einfalt virðist það vera. Sá sem er fúll og pirraður út í nágrannann þarf hvorki að tala við hann né kynna sér málið. Hann hugsar bara með sér: „Ég er fúll á móti, ég ætla að senda inn grein í Víkurfréttir.“ Hann fær útrás fyrir reiðina og ber enga ábyrgð á neinu. Blaðið birtir rausið athugasemdalaust. Þó var ekkert smámál á ferðinni: fyrirtæki í bænum, með tugi manna í vinnu, var sakað um að starfa án eftirlits. Í bæjarblaði, þar sem stutt er á milli fólks, hefði ritstjórnin átt að kynna sér málið áður en greinin fór í birtingu.
Ég ákvað á sínum tíma að svara ekki. Við áttum þá í viðræðum við embættismenn um lausn á málinu og ég vildi ekki að hún réðist í blaðagreinum. Það var mitt val og ég hefði hvenær sem er getað sent inn svar. En viðræðurnar skiluðu ekki árangri og nú er kominn tími til að okkar hlið heyrist.
Hvað gerðist svo?
DV hafði ekki heldur samband við okkur og það gerði greinarhöfundurinn ekki heldur. Hann segist hafa kvartað ítrekað til heilbrigðiseftirlitsins „ásamt fleiri íbúum að því er best er vitað“. Hann vissi það sem sagt ekki. Til okkar barst aldrei bein kvörtun, hvorki frá honum né öðrum nágranna. Kvörtunin barst okkur að lokum frá heilbrigðiseftirlitinu, löngu síðar. Við vitum satt að segja ekki hver Ólafur Gunnarsson, höfundur greinanna, er. Í þjóðskrá finnum við engan með hans nafni með lögheimili við Brekkustíg. Hann hefði hvenær sem er getað kíkt við og rætt málin.
Í upphafi ársins störfuðu 38 manns hjá Premium of Iceland, allt fólk sem býr hér á Suðurnesjum og langflest í Reykjanesbæ. Síðan hefur starfsfólki fækkað mikið vegna umfjöllunarinnar og óvissunnar sem henni fylgdi, og áhrifin komu strax fram. Nú hefur okkur verið gert að loka vinnslunni og starfsfólkinu hefur verið sagt upp. Víkurfréttir birtu fréttatilkynningu frá okkur um það 1. október og fyrir það þakka ég. Fram að því hafði enginn á blaðinu spurt um okkar hlið.
Um hvað snýst málið?
Fiskvinnsla þarf ekki starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti. Síðan 2022 nægir að skrá starfsemina og eftirlitinu ber að staðfesta skráninguna sé starfsemin í lagi. Við sóttum um skráningu og fengum synjun.
Ástæðan var hvorki hreinlæti, mengun né umgengni. Skipulagsfulltrúi bæjarins taldi að húsið stæði á svæði sem samkvæmt aðalskipulagi á einhvern tímann að fá aðra notkun. Það er svipað og ef bifreiðaskoðun neitaði bíl um skoðun af því að bærinn hygðist einhvern tímann breyta götunni sem bíllinn stendur við í göngugötu. Ekkert slíkt skilyrði er að finna í reglugerðinni. Fyrir tveimur árum felldi úrskurðarnefnd úr gildi nákvæmlega sams konar ákvörðun sama eftirlits, um fiskvinnslu í sama bæ.
Á lóðinni okkar hefur fiskur verið unninn í hálfa öld og á reitnum í kring í að minnsta kosti hundrað ár. Heilbrigðiseftirlitið staðfestir það sjálft: þar hefur „um áratugaskeið verið rekin fiskvinnsla“. Byggðin óx af vinnslunni, ekki öfugt.
Sumt í greinunum var rétt. Fráveitubrunnur við húsið stíflaðist og úr honum lak út á Bakkastíg. Það var ekki í lagi og það var lagað eins fljótt og hægt var. Við höfum alltaf lagt okkur fram um að umbúðir og annað rusl berist ekki frá okkur. Í verstu veðrum hefur vissulega eitthvað fokið, rétt eins og rusl úr tunnum nágrannanna hefur fokið yfir til okkar. En „heilbrigðiseftirlitslaus“ var vinnslan aldrei. Við höfum öll þau leyfi og vottanir sem Matvælastofnun krefst af matvælavinnslu, og raunar fleiri en þörf er á. Um 85% framleiðslunnar fara til Evrópu, aðallega Frakklands, og enginn selur matvæli þangað án strangs opinbers eftirlits.
Allt þetta hefði komið fram í einu símtali.
Hver ber ábyrgðina?
Aðsend grein er á ábyrgð höfundar. En það er ritstjórnin sem ákveður að birta hana og með birtingunni lánar blaðið greininni trúverðugleika sinn. Lesandinn spyr ekki hvort greinin hafi verið aðsend. Hann les einfaldlega í bæjarblaðinu að fiskvinnslan sé eftirlitslaus og trúir því.
Sé ekkert athugað getur hver sem er, af hvaða hvötum sem er, sent inn hvað sem er um hvern sem er. Þá ræður sá ferðinni sem er reiðastur, ekki sá sem hefur rétt fyrir sér.
Greinarnar loka ekki vinnslunni, en þær eiga sinn þátt í tjóni sem nú nemur hundruðum milljóna króna. Þær mótuðu þá mynd sem bæjarbúar, viðskiptavinir og aðrir fengu af okkur, og það bitnaði ekki síst á starfsfólkinu okkar, sem nú hefur allt fengið uppsagnarbréf. Þögnin var mín ákvörðun og á henni ber ég ábyrgð. En hún breytir ekki því að blaðið birti einhliða ásakanir, tvisvar, án þess að spyrja okkur nokkurn tíma.
Því fylgir ábyrgð að gefa út bæjarblað. Í litlu samfélagi getur ein grein haft mikil áhrif og þá skiptir máli að blaðið leiti eftir báðum hliðum áður en ásakanir eru birtar.
Allt sem hér stendur má sannreyna og dyrnar að Brekkustíg 22–24 standa opnar hverjum þeim sem vill kynna sér málið áður en hann skrifar um það.
Gylfi Þór Markússon
Höfundur er framkvæmdastjóri Premium of Iceland ehf.









