Sameiginleg ábyrgð á góðu skólasamfélagi
Sameiginleg ábyrgð á góðu skólasamfélagi
Börnin eru mikilvægust. Þessi orð úr menntastefnu Reykjanesbæjar eiga að endurspegla allt skólastarf bæjarfélagsins. Þau eiga að vera leiðarljós í daglegu starfi og hafa áhrif á ákvarðanir, samskipti, kennsluhætti og skipulag skólastarfs. Í Stapaskóla er lögð áhersla á að skapa skólasamfélag þar sem öllum börnum er mætt af virðingu, að þau fái tækifæri til að nýta styrkleika sína og áhuga og þann stuðning og þær áskoranir sem þau þurfa til að ná árangri. Verkefnið er ekki að gera öll börn eins, heldur að skapa þeim góðar aðstæður til náms, þroska og félagslegra tengsla. Slíkt krefst sameiginlegrar ábyrgðar starfsfólks, nemenda og heimila.
Menning skiptir máli
Skólastarf snýst ekki eingöngu um kennslu og námsárangur. Börn læra einnig af samskiptum, viðhorfum og þeirri menningu sem einkennir skólasamfélagið þeirra. Þau læra af því hvernig fullorðnir bregðast við mistökum, hvernig ágreiningur er leystur og hvernig komið er fram við aðra. Þess vegna skiptir máli að skapa umhverfi þar sem börn upplifa öryggi, tilheyra hópi og vita að á þau sé hlustað. Slíkt umhverfi styður við nám og gerir börnum auðveldara að taka þátt, takast á við áskoranir og þróa sjálfstæði. Í Stapaskóla er unnið eftir hugmyndafræðinni Uppeldi til ábyrgðar, þar sem áhersla er lögð á ábyrgð einstaklinga á eigin ákvörðunum og framkomu. Þar er einnig lögð áhersla á að einstaklingurinn hafi val um hvernig hann bregst við aðstæðum þó að oft þurfi æfingu og aðstoð. Allt þetta er mikilvæg nálgun í skólastarfi. Börn þurfa að læra að bera ábyrgð á gjörðum sínum en þau þurfa jafnframt að fá tækifæri til að læra af mistökum því mistök eru hluti af námi og þroska. Mikilvægast er að geta viðurkennt þau, lært af þeim og fundið betri leið næst.
Gildi sem eiga að sjást í verki
Gildi Stapaskóla eru gleði, vinátta, samvinna og virðing. Gildi hafa þó lítið vægi ef þau eru eingöngu sýnileg á veggjum eða í stefnumótun, þau þurfa og verða að birtast í daglegu skólastarfi. Gleði skapar jákvætt andrúmsloft og eykur vellíðan. Hún má og á að eiga sinn stað í skólastarfi án þess að dregið sé úr kröfum eða fagmennsku. Vinátta og góð félagsleg tengsl eru mikilvæg til að skapa öryggi og tilfinningu fyrir því að tilheyra. Börn þurfa að fá leiðsögn í samskiptum, læra að leysa ágreining og taka þátt í að skapa góðan skóla. Samvinna er svo forsenda þess að við náum árangri. Nemendur þurfa að læra að vinna með öðrum, starfsfólk þarf að vinna saman að sameiginlegum markmiðum og fjölskyldur og samfélagið allt að styðja við starfið. Gott skólastarf verður ekki til með einstaklingsframtaki einnar manneskju heldur með samstilltu starfi margra. Virðing felur í sér að sjá hvert annað, hlusta og taka tillit. Í orðinu virðing felst orðið virði. Hver einstaklingur þarf að upplifa að hann skipti máli og að framlag hans hafi gildi, sé einhvers virði. Á sama hátt þarf hvert og eitt okkar að sýna öðrum þá virðingu sem við sjálf viljum njóta.
Faglegt starf og sameiginleg sýn
Góður skóli verður ekki til af sjálfu sér heldur mótast af fagmennsku starfsfólks, skýrri stefnu, markvissri stjórnun og sameiginlegri sýn. Starfsfólk Stapaskóla hefur sýnt mikinn metnað í uppbyggingu skólastarfsins og áherslan á þarfir nemenda er skýr. Verkefnið fram undan er að halda áfram að þróa starfshætti, styrkja teymisvinnu, nýta fjölbreytta kennsluhætti og skapa góðar aðstæður fyrir bæði nemendur og starfsfólk. Framúrskarandi skólastarf snýst ekki um að allt sé fullkomið heldur snýst það um stöðugar umbætur, faglega umræðu og vilja til að spyrja reglulega hvort hægt sé að gera betur. Þar þarf einnig að vera svigrúm til að gera mistök, læra af þeim og breyta því sem ekki virkar.
Hlutverk og samstarf
heimila og skóla
Uppeldi til ábyrgðar leggur meðal annars áherslu á að einstaklingar þurfi að þekkja sitt hlutverk og bera ábyrgð á því. Hlutverk heimilis og skóla eru ólík en þau styðja hvort annað. Foreldrar eru mikilvægar fyrirmyndir barna sinna og bera meginábyrgð á uppeldi þeirra. Þeir veita börnum öryggi, umhyggju og leiðsögn og kenna þeim grundvallargildi og reglur samfélagsins. Hlutverk skólans er að mennta, efla og styðja nemendur í námi og félagslegum þroska. Skólinn á að veita þeim þekkingu og fjölbreytt verkfæri til að takast á við verkefni samtímans og framtíðarinnar. Nám fer að stórum hluta fram í samskiptum við aðra og börn læra bæði með og af öðrum börnum, undir leiðsögn kennara og annars starfsfólks. Þess vegna er gott samstarf heimila og skóla ein mikilvægasta forsenda farsæls skólastarfs. Það samstarf þarf að byggjast á trausti, virðingu og hreinskilnum samskiptum. Þegar eitthvað má betur fara þarf að vera hægt að ræða það af yfirvegun og leita lausna. Markmiðið á alltaf að vera það sama, að tryggja börnum góðar aðstæður til náms og velferðar.
Sameiginlegt verkefni
Nýtt skólaár felur í sér ný tækifæri til að halda áfram að þróa skólasamfélagið. Það kallar á opinn huga, fagmennsku, ábyrgð og samvinnu. Stapaskóli er og á ætíð að vera öruggt, metnaðarfullt og lifandi skólasamfélag þar sem öll börn tilheyra, fá að njóta sín og fá tækifæri til að ná árangri. Að tryggja það er sameiginlegt verkefni nemenda, starfsfólks, heimila og samfélagsins alls. Það er daglegt verkefni, í kennslustofum, á göngunum, í frímínútum, í samskiptum og í öllum þeim litlu ákvörðunum sem teknar eru daglega og saman móta skólamenninguna. Saman getum við gert svo ótal margt og komið alls konar góðu til leiðar.
Hólmfríður Jennýjar
Árnadóttir, menntunarfræðingur og skólastjóri Stapaskóla leik- og grunnskóla







