Lýsing sett í Símamastrið í Keflavík
Það mun aftur birta yfir Keflavík á Ljósanótt. Björgunarsveitin Suðurnes hefur lokið við krefjandi verkefni: að setja upp nýjar ljósaskreytingar í hinu þekkta Símamastri í bænum, en mastrið var um áratugaskeið eitt helsta einkenni jólaljósanna á Suðurnesjum.
Verkefnið var unnið í samstarfi við verslunina Tengdu, sem stóð fyrir framtakinu og fékk björgunarsveitina til liðs við sig. Um var að ræða nýjar skreytingar og mikið og dagsverk fyrir vaska menn.
„Þetta var mjög krefjandi verkefni,“ segir Haraldur Haraldsson hjá Björgunarsveitinni Suðurnes, en sveitin stóð í ströngu við að koma seríunum upp fyrir hátíðina. Til verkefnisins voru valdir þeir félagar sveitarinnar sem síst voru lofthræddir, enda aðstæður í mastrinu krefjandi.
Haraldur bindur vonir við að það verði stór stund þegar kveikt verði á ljósunum í allri sinni dýrð í tilefni af Ljósanótt, en mikill áhugi er fyrir því að endurvekja þessa gömlu og vinsælu hefð í bænum.
Flugeldarnir klárir og nóg um að vera
Auk vinnunnar við mastrið hefur Björgunarsveitin Suðurnes haft í mörgu að snúast fyrir hátíðina. Undirbúningur fyrir hina hefðbundnu flugeldasýningu Ljósanætur hefur staðið yfir lengi og er allt til reiðu.
„Það er allt í gangi og við erum alveg klár fyrir Ljósanótt,“ segir Haraldur.
Björgunarsveitarfólkið sem setti upp skreytingarnar var með búkmyndavélar og þá var dróna flogið umhverfis mastrið þegar það var skreytt. Þetta myndefni fylgir fréttinni og sýnir mastrið gnæfa yfir bænum frá nýju sjónarhorni.