Brimvarnargarður í Njarðvík að klárast og skemmtiferðaskipum fjölgar
Málefni Reykjaneshafnar voru reifuð á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Brimvarnargarður í Njarðvíkurhöfn er nú 80% tilbúinn og er áætlað að verkinu ljúki í október, en skemmtilegt ankeri sem kom upp við dýpkun hefur verið sett á garðinn til skreytingar.
Þá kom fram að komur skemmtiferðaskipa hefðu gengið vel og skapað mikið líf í bænum, en tveggja skipa er enn vænst í september. Þá var tilkynnt að Reykjanesbær muni hýsa landshlutaþing Hafnasambandsins í október næstkomand





