Viljayfirlýsing um stækkun verknámsaðstöðu FS undirrituð
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar fyrir hönd sveitarfélaga á Suðurnesjum, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Undirritunin fór fram á 50 ára afmælishátíð skólans. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist upp úr áramótum að 1.800 fermetra stækkun á verknámshúsi skólans.
Undirbúningur að stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur staðið yfir undanfarin ár. Viljayfirlýsingin nú leggur grunninn að því að hefja framkvæmdir á grundvelli frumathugunar Framkvæmdasýslu – Ríkiseigna. Samkvæmt viljayfirlýsingunni mun Reykjanesbær fyrir hönd Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa umsjón með framkvæmdunum.
„Við þurfum að tala verk- og starfsnám upp og líka sýna það í verki. Þessi stækkun er einmitt slíkt skref, fjárfesting í unga fólkinu, atvinnulífinu og framtíð Suðurnesja. Ég fagna sérstaklega því hversu myndarlega sveitarfélögin á svæðinu koma að verkefninu. Þegar ríki, sveitarfélög og skólarnir taka höndum saman þá getum við látið hlutina gerast,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.
„Fjölbrautaskóli Suðurnesja er gríðarlega mikilvægur fyrir samfélagið okkar og því er sérstaklega ánægjulegt að sjá þetta langþráða verkefni loksins verða að veruleika. Mikil uppbygging er fram undan á Suðurnesjum og mikilvægt að skólinn vaxi samhliða henni og verði í stakk búinn til að mennta unga fólkið okkar til þátttöku í þeim fjölmörgu tækifærum sem hér eru að skapast. Við fögnum því jafnframt að framkvæmdin verði í höndum sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Það er skynsamlegt að verkefni sem þessu sé stýrt úr heimabyggð, í nálægð við skólann, notendur húsnæðisins og atvinnulífið sem verknámið þjónar,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Verkefnið er hluti af atvinnustefnu stjórnvalda til að efla verk- og starfsnám víðs vegar um landið. Samhliða uppbyggingu Fjölbrautaskóla Suðurnesja er unnið að stækkun verknámsaðstöðu Fjölbrautaskólans í Breiðholti sem lýkur nú í haust og 1.500 fermetra viðbyggingu við Verkmenntaskólann á Akureyri. Undirbúningur stækkunar Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki er í fullum gangi og annast sveitarfélagið Skagafjörður framkvæmdina fyrir hönd sveitarfélaganna á svæðinu. Ráðuneytið vinnur jafnframt að uppbyggingu nýs þrjú þúsund fermetra Tækniskóla á höfuðborgarsvæðinu og rúmlega þúsund fermetra stækkun verk- og starfsnámsaðstöðu við Menntaskólann á Ísafirði.








